Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

Lagnavinna gekk vel í nótt

Microsoftteams Image 166

Framkvæmdir næturinnar við hjáveitulögn Njarðvíkuræðar gengu vel og örugglega fyrir sig. Vegagerð yfir hraunið er lokið og búið er að sjóða saman um helming stálröranna sem mynda hjáveitulögnina. Sömuleiðis hefur gengið vel að smíða allan tengibúnað og er þegar byrjað að koma hluta hans fyrir við norðurenda hraunsins. Um 50 manns unnu að framkvæmdum í nótt og nýjar vaktir taka síðan við keflinu í dag. Allur rekstur í orkuverum HS Orku er stöðugur.

Við suðuna hefur verið komið upp stóru framleiðsluplani sem liggur eftir löngum vegi og raða suðuteymi sér upp eftir línunni. Sjóða þarf saman hátt í fimmta tug stálröra og vinna mörg suðuteymi að verkinu samtímis. Lögnin verður um 500 metra löng og mun vega hátt í 80 tonn samansett.

Verið er að flytja rúllukefli á framkvæmdasvæðið og verður lögnin sett ofan á þau og dregin af jarðýtum út á hraunbrautina sem lokið var við að leggja í nótt. Einnig verða gamlir símastaurar sagaðir niður og notaðir sem undirlag við drátt lagnarinnar en nokkrar jarðýtur þarf til verksins vegna þyngdar hennar. Vonir standa til þess að hægt verði að draga fyrsta hluta lagnarinnar út á hraunið síðdegis í dag.

Aðstæður á vettvangi í nótt voru nokkuð erfiðar til suðu, hvasst en þó mun hlýrra en verið hefur að undanförnu. Mannskapurinn ber sig vel en hraðinn á verkinu er óvenjulegur, auk þess sem telja má einstakt að halda úti jafnmörgum ólíkum verkhópum við störf samtímis. Í þeim kringumstæðum er brýnt að fyllsta öryggis sé gætt um leið og kappkostað er að hleypa heitu vatni á Njarðvíkuræðina sem allra fyrst. 

Microsoftteams Image 165
Microsoftteams Image 168
Microsoftteams Image 173 002
Microsoftteams Image 171
Microsoftteams Image 167

Fréttir

Skoða allar fréttir
Vörumerki HS Orku verðlaunað á CHARGE Uploads 3000215 3003306475 Processed R Fv5a3wdzysvwbgcgau2gsyi0ncotcq7s0n9k4deq

21.10.2026

Vörumerki HS Orku verðlaunað á CHARGE

Lesa nánar
Nýr raforkusamningur Norðuráls og HS Orku tekur gildi A Century Ice1920x1080 41

01.10.2026

Nýr raforkusamningur Norðuráls og HS Orku tekur gildi

Lesa nánar
HS Orka tekur þátt í rafvæðingu strandveiðiflotans Img 7328

17.09.2026

HS Orka tekur þátt í rafvæðingu strandveiðiflotans

Lesa nánar
Opið fyrir umsóknir í Samfélagssjóð HS Orku Safsadfa

02.09.2026

Opið fyrir umsóknir í Samfélagssjóð HS Orku

Lesa nánar
Mikill viðbúnaður á Reykjanesi vegna almyrkvans Picture5 603876

11.08.2026

Mikill viðbúnaður á Reykjanesi vegna almyrkvans

Lesa nánar
HS Orka kaupir Múlavirkjun Múlavirkjun Á Snæfellsnesi

28.07.2026

HS Orka kaupir Múlavirkjun

Lesa nánar
HS Orka leggur Jarðhitaskólanum lið Jarðhitaskóli Unesco 2026 Lýst (1)

16.07.2026

HS Orka leggur Jarðhitaskólanum lið

Lesa nánar
HS Orka þátttakandi í rannsóknum sem styrkja viðbúnað Íslands gagnvart náttúruvá Rannís Styrkir Afhentir

01.07.2026

HS Orka þátttakandi í rannsóknum sem styrkja viðbúnað Íslands gagnvart náttúruvá

Lesa nánar
HS Orka á World Geothermal Conference 2026 Untitled Design 16

03.06.2026

HS Orka á World Geothermal Conference 2026

Lesa nánar