Chat with us, powered by LiveChat Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

HS Orka kaupir Múlavirkjun

HS Orka hefur gengið frá kaupum á hlutafélaginu Múlavirkjun hf. en félagið á og rekur vatnsaflsvirkjunina Múlavirkjun í Eyja- og Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi.

Múlavirkjun Á Snæfellsnesi
Múlavirkjun á Snæfellsnesi. (ljósmynd: Tómas Freyr)
Tómas Freyr

HS Orka kaupir Múlavirkjun

HS Orka hefur gengið frá kaupum á hlutafélaginu Múlavirkjun hf. en félagið á og rekur vatnsaflsvirkjunina Múlavirkjun í Eyja- og Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi. Stærsti eigandi félagsins var Eggert Kjartansson, bóndi á Hofsstöðum. Múlavirkjun var formlega gangsett í nóvember árið 2005 og er uppsett afl hennar 3,2 MW. 

Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, fagnar þessum áfanga en þetta er fyrsta virkjun fyrirtækisins á Vesturlandi:
„Við þekkjum Múlavirkjun vel og vitum að við erum taka við góðu búi. Við höfum átt í farsælu samstarfi við fyrri eigendur og við munum leggja okkur fram um að eiga áfram í góðu samstarfi við samfélagið á Vesturlandi.“

Múlavirkjun miðlar vatni sem tekið er við upptök Straumfjarðarár þar sem hún fellur úr Baulárvallavatni og Hraunsfjarðarvatni. Þrír bændur í héraði stóðu að framkvæmdinni á sínum tíma; Eggert Kjartansson á Hofsstöðum, Ástþór Jóhannsson í Dal og Bjarni Einarsson í Tröðum. HS Orka hefur frá upphafi stýrt allri framleiðslu virkjunarinnar og jafnframt keypt alla orku frá henni.

Fréttir

Skoða allar fréttir
Mikill viðbúnaður á Reykjanesi vegna almyrkvans Picture5 603876

11.08.2026

Mikill viðbúnaður á Reykjanesi vegna almyrkvans

Lesa nánar
HS Orka kaupir Múlavirkjun Múlavirkjun Á Snæfellsnesi

28.07.2026

HS Orka kaupir Múlavirkjun

Lesa nánar
HS Orka leggur Jarðhitaskólanum lið Jarðhitaskóli Unesco 2026 Lýst (1)

16.07.2026

HS Orka leggur Jarðhitaskólanum lið

Lesa nánar
HS Orka þátttakandi í rannsóknum sem styrkja viðbúnað Íslands gagnvart náttúruvá Rannís Styrkir Afhentir

01.07.2026

HS Orka þátttakandi í rannsóknum sem styrkja viðbúnað Íslands gagnvart náttúruvá

Lesa nánar
HS Orka á World Geothermal Conference 2026 Untitled Design 16

03.06.2026

HS Orka á World Geothermal Conference 2026

Lesa nánar
Annar áfangi rannsóknarborana hafinn á Krýsuvíkursvæðinu Media 4

21.05.2026

Annar áfangi rannsóknarborana hafinn á Krýsuvíkursvæðinu

Lesa nánar
Sjálfbærniskýrsla HS Orku varpar ljósi á áhrif jarðhræringa Dsc0905

13.05.2026

Sjálfbærniskýrsla HS Orku varpar ljósi á áhrif jarðhræringa

Lesa nánar
Fjórtán milljónir í styrki úr Rannsóknasjóði HS Orku Hsorka 24

12.05.2026

Fjórtán milljónir í styrki úr Rannsóknasjóði HS Orku

Lesa nánar
Stjórnvöld og orkufyrirtæki þróa næstu kynslóðar jarðhita Undirritun (1)

11.05.2026

Stjórnvöld og orkufyrirtæki þróa næstu kynslóðar jarðhita

Lesa nánar