Svæðin okkar - HS Orka Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

Vertu hluti af framtíðinni

Ef þú ert að leita að tækifæri til að efla rekstur með ábyrgri auðlindanýtingu, lágmarks sóun og hringrásarhugsun gæti Auðlindagarðurinn verið rétti staðurinn fyrir þitt fyrirtæki. Við einbeitum okkur nú að frekari uppbyggingu í Auðlindagarði Reykjanesvirkjunar og viljum þróa framtíð sjálfbærrar framleiðslu með þér.

Staðsetningar

Við bjóðum upp á iðnaðarlönd á einni best staðsettu grænu uppbyggingarlóð landsins. Sem stendur höfum við 50 hektara af iðnaðarlöndum í boði með möguleika á beinum tengingum við virkjun og fjölbreytta auðlindastrauma.

Lóðirnar eru á eftirsóttum stað á Íslandi, um 30 km frá höfuðborgarsvæðinu, og fjölmargar lóðir í mismunandi stærðum eru í boði til langtímaleigu.

Svæðin okkar

Græn vottuð orka

Auðlindagarðurinn býður atvinnurekstri upp á græna, vottuða orku á samkeppnishæfu verði. Við bjóðum langtíma PPA samninga sem tryggja fyrirsjáanleika í orkuverði fyrir viðskiptavini okkar.

Stutt í alla helstu innviði

Auðlindagarðurinn er vel tengdur höfuðborgarsvæðinu og nálægum samgöngumannvirkjum. Hann er nærri djúpvötnum höfnum og stærsta alþjóðaflugvelli landsins, sem tryggir skilvirka flutninga til Evrópu og Norður Ameríku.

  • 60 km frá höfuðborgarsvæðinu
  • 20 km frá Helguvíkurhöfn
  • 12 km frá Keflavíkurflugvelli (KEF)

Reykjanesvirkjun

Reykjanessvæðið byggist í kringum Reykjanesvirkjun sem var tekin í notkun árið 2006. Innviðir og auðlindir á svæðinu henta sérstaklega vel fyrir matvælaframleiðslu, inniræktun og fiskeldi.

  • Rekstrarleyfi uppá 130 MWe

  • Árleg framleiðsla er 803 GWh

Svartsengi

Svartsengissvæðið byggist í kringum Svartsengi, fyrstu jarðvarmavirkjun landsins sem sameinar raforkuframleiðslu og hitaveitu. Fjölmörg fyrirtæki hafa dafnað á svæðinu, þar á meðal Bláa Lónið, rannsóknar  og þróunarfyrirtæki og hótel.

CRI International, fyrsti stórframleiðandi græns metanóls í heiminum, er einnig staðsettur á svæðinu.

  • Rekstrarleyfi uppá 74 MWe

  • Árleg framleiðsla er 573 GWh

Viltu verða hluti af Auðlindagarðinum?

Hafðu samband

Hafðu endilega samband og deildu hugmyndunum þínum með okkur. Við erum tilbúin að hefja samtal og bjóðum þig velkominn í vettvangsferð.

Hs Orka8723