Um Auðlindagarðinn - HS Orka Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

Sjálfbærni í fyrirrúmi

Auðlindagarðurinn leiðandi klasi grænna og sjálfbærra fyrirtækja byggður í kringum jarðvarmavirkjanir HS Orku. Hér gefst fyrirtækjum einstakt tækifæri til að efla starfsemi sína með ábyrgi auðlindanýtingu og lágmarkun á sóun.

Sjálfbærni í framkvæmd

Auðlindagarðurinn er á lykilstað á Reykjanesskaga, milli alþjóðaflugvallarins og höfuðborgarinnar Reykjavíkur. Hann er einstakur miðpunktur sjálfbærra rannsókna, þróunar, framleiðslu og atvinnustarfsemi. Fyrirtækjum býðst að nýta fjölbreytta jarðvarmastrauma sem styðja við hringrásarhagkerfi og sjálfbæra framleiðslu.

Saga Auðlindagarðinn

Auðlindagarðurinn hefur þróast í kringum jarðvarmavirkjanir HS Orku allt frá árinu 1974. Hann hefur verið brautryðjandi í því að skapa verðmæti úr fjölbreyttum jarðvarmaauðlindum sem annars hefðu farið til spillis og hafa fjölmörg fyrirtæki nýtt sér.

HS Orka rekur tvo klastra á Reykjanesskaga þar sem í boði eru iðnaðarlönd og aðgangur að endurnýjanlegri orku og verðmætum auðlindum.

Í dag, með sterkri áherslu á fjölnýtingu og ábyrga nýtingu náttúruauðlinda, afhendir HS Orka yfir 1,9 TWh af varmaorku árlega til samstarfsaðila í Auðlindagarðinum.
Sjálfbær orkunýting er sérstaklega áberandi meðal fyrirtækja á svæðinu við Reykjanesvirkjun, þar sem:

  • 69% sjávarvatns sem notað er á svæðinu er hluti af fjölnýtingu auðlindastrauma,
  • 98% af allri orkunotkun kemur frá endurnýjanlegum orkugjöfum,
    • 84% frá varmaorku sem annars færi forgörðum,
    • 12% frá jarðvarmaorku,
    • aðeins 2% frá jarðefnaeldsneyti.

Samstarfsaðilar okkar

Yfir tíu fyrirtæki starfa nú þegar í Auðlindagarðinum á fjölbreyttum sviðum. Við bjóðum ný fyrirtæki velkomin sem deila gildum okkar og framtíðarsýn um sjálfbæra auðlindanýtingu. Hafðu samband ef fyrirtækið þitt hefur áhuga á að hefja starfsemi í Auðlindagarðinum.

Samstarfsaðilar okkar

„Stolt Sea Farm hóf uppbyggingu í Auðlindagarðinum árið 2012 þar sem skilyrðin voru kjörin til að rækta lúðu af hæsta gæðaflokki í sjálfbærum og umhverfisvænum framleiðslukerfum. Þar nýtum við græna orku og ylsjó frá Reykjanesvirkjun. Staðsetningin á milli tveggja heimsálfa gerir okkur einnig kleift að koma framleiðslunni inn á tvö stór markaðssvæði með þeim ávinningi sem því fylgir, sem gerir Auðlindagarðinn að frábærum stað fyrir fjárfestingu.“

James Hall
Stjórnandi, Stolt Sea Farm

Stolt

Auðlindastraumar í Auðlindagarðinum

Græn vottuð orka

Auðlindagarðurinn býður atvinnurekstri upp á græna vottuða orku á samkeppnishæfu verði. Við bjóðum upp á langtíma PPA‑samninga sem tryggja viðskiptavinum fyrirsjáanleika í orkuverði.

Kjörin staðsetning

Við bjóðum upp á iðnaðarlönd í lykilstöðum á Íslandi.
• 50 hektarar iðnaðarsvæða eru nú í boði, með möguleika á beinum tengingum við virkjun og fjölmarga auðlindastrauma.
• Margs konar lóðir í mismunandi stærðum til langtímaleigu.
• Aðeins 30 km frá höfuðborginni og 22 km frá flugvellinum.

Græn vottuð orka

Auðlindagarðurinn býður atvinnurekstri upp á græna vottuða orku á samkeppnishæfu verði. Við bjóðum upp á langtíma PPA samninga sem tryggja viðskiptavinum fyrirsjáanleika í orkuverði.

Kjörin staðsetning

Við bjóðum upp á iðnaðarlönd í lykilstöðum á Íslandi.

  • 50 hektarar iðnaðarsvæða eru nú í boði, með möguleika á beinum tengingum við virkjun og fjölmarga auðlindastrauma.
  • Margs konar lóðir í mismunandi stærðum til langtímaleigu.
  • Aðeins 30 km frá höfuðborginni og 22 km frá flugvellinum.

Vertu hluti af framtíðinni

Ef þú leitar að tækifæri til að efla rekstur með ábyrgri auðlindanýtingu, lágmarks sóun og hringrásarhugsun, gæti Auðlindagarðurinn verið rétti staðurinn fyrir þitt fyrirtæki.

Hs Orka1687