Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

Nýr raforkusamningur Norðuráls og HS Orku tekur gildi

A Century Ice1920x1080 41
Norðurál á Grundartanga

Nýr raforkusamningur Norðuráls og HS Orku, um afhendingu á 50 megavöttum af raforku fyrir starfsemi álvers Norðuráls á Grundartanga, tekur gildi í dag 1. október. Samningurinn var undirritaður síðastliðið haust og gildir út september 2031.

Nýr samningur markar mikilvægan áfanga í samstarfi fyrirtækjanna en Norðurál hefur keypt raforku frá HS Orku allt frá því að álverið hóf starfsemi árið 1998. 

Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku: „Norðurál hefur verið einn mikilvægasti viðskiptavinur HS Orku í rúm 25 ár og það er mjög ánægjulegt að ná saman um áframhaldandi samstarf. Raforkunotkun Norðuráls hentar vel framleiðslu á raforku frá jarðvarmavirkjunum þar sem orkunotkun er stöðug og fyrirsjáanleg. Með þessum samningi er hafin ný vegferð inn í framtíðina sem án efa mun efla fyrirtækin til góðra verka.“

Gunnar Guðlaugsson, forstjóri Norðuráls: „Það er ánægjulegt að nýr raforkusamningur sé í höfn. Fyrirsjáanleiki og öruggt aðgengi að endurnýjanlegri raforku er grundvöllurinn í okkar rekstri og þess vegna skiptir afar miklu máli að eiga trausta samstarfsaðila eins og HS Orku. Samstarf fyrirtækjanna hefur verið afar gott undanfarna áratugi, allt frá stofnun Norðuráls, en með endurnýjanlegri raforku frá HS Orku framleiðum við umhverfisvænasta ál í heimi. Ég er sannfærður um að nýr samningur muni styrkja enn frekar samstarf fyrirtækjanna til framtíðar.“ 

HS Orka á og rekur fimm virkjanir, tvær jarðvarmavirkjanir á Reykjanesskaganum og þrjár vatnsaflsvirkjanir sem eru staðsettar á Suðurlandi, Austurlandi og Vesturlandi. Fleiri virkjunarkostir víða um land eru til skoðunar hjá fyrirtækinu og er þróun þeirra komin mislangt á veg.

Norðurál er eitt stærsta iðnfyrirtæki landsins og einn af stærstu kaupendum íslenskrar raforku. Raforkuna nýtir fyrirtækið að langstærstum hluta til að vinna hreint ál úr áloxíði í álverinu á Grundartanga og framleiða ál og álblöndur fyrir alþjóðamarkað. Norðurál hefur náð góðum árangri við að takmarka losun gróðurhúsalofttegunda, minnka sóun og bæta nýtingu hráefna. Notkun umhverfisvænna orkugjafa skiptir því sköpum, en skýr umhverfisvitund gegnir lykilhlutverki á öllum stigum framleiðslunnar.

Fréttir

Skoða allar fréttir
Nýr raforkusamningur Norðuráls og HS Orku tekur gildi A Century Ice1920x1080 41

01.10.2026

Nýr raforkusamningur Norðuráls og HS Orku tekur gildi

Lesa nánar
HS Orka tekur þátt í rafvæðingu strandveiðiflotans Img 7328

17.09.2026

HS Orka tekur þátt í rafvæðingu strandveiðiflotans

Lesa nánar
Opið fyrir umsóknir í Samfélagssjóð HS Orku Safsadfa

02.09.2026

Opið fyrir umsóknir í Samfélagssjóð HS Orku

Lesa nánar
Mikill viðbúnaður á Reykjanesi vegna almyrkvans Picture5 603876

11.08.2026

Mikill viðbúnaður á Reykjanesi vegna almyrkvans

Lesa nánar
HS Orka kaupir Múlavirkjun Múlavirkjun Á Snæfellsnesi

28.07.2026

HS Orka kaupir Múlavirkjun

Lesa nánar
HS Orka leggur Jarðhitaskólanum lið Jarðhitaskóli Unesco 2026 Lýst (1)

16.07.2026

HS Orka leggur Jarðhitaskólanum lið

Lesa nánar
HS Orka þátttakandi í rannsóknum sem styrkja viðbúnað Íslands gagnvart náttúruvá Rannís Styrkir Afhentir

01.07.2026

HS Orka þátttakandi í rannsóknum sem styrkja viðbúnað Íslands gagnvart náttúruvá

Lesa nánar
HS Orka á World Geothermal Conference 2026 Untitled Design 16

03.06.2026

HS Orka á World Geothermal Conference 2026

Lesa nánar
Annar áfangi rannsóknarborana hafinn á Krýsuvíkursvæðinu Media 4

21.05.2026

Annar áfangi rannsóknarborana hafinn á Krýsuvíkursvæðinu

Lesa nánar