Jarðhitaleit í Krýsuvík
Krýsuvíkursvæðið er talið eitt af mikilvægustu jarðhitasvæðum landsins þegar kemur að því að tryggja afhendingaröryggi á heitu vatni fyrir Hafnarfjörð og höfuðborgarsvæðið.
Rannsóknir í Krýsuvík
HS Orka vinnur nú að jarðhitarannsóknum í Krýsuvík sem hófust með borun djúprar rannsóknarborholu við Sveifluháls sumarið 2025. Haustið 2026 voru tvær rannsóknarborholur til viðbótar boraðar frá einum og sama borteig við Bleikhól skammt frá Kleifarvatni. Að jafnaði er borað niður á um 2,500 metra dýpi með stefnuborun og geta holurnar orðið um 2,700 metra langar.
Markmið rannsóknanna er að kanna hvort finna megi svæði með nægjanlegum hita og nægjanlegri lekt. Lekt kallast það þegar heitt vatn flæðir auðveldlega um jarðlögin. Ef markmiðum rannsóknanna er náð er þess vænst að svæðið nýtist vel til heitavatnsframleiðslu fyrir suðvestuhorn landsins og raforkuframleiðslu inn á meginflutningskerfi Landsnets.
Þjóðhagslega mikilvægt svæði
Krýsuvíkursvæðið er talið eitt af mikilvægustu jarðhitasvæðum landsins þegar kemur að því að tryggja afhendingaröryggi á heitu vatni fyrir Hafnarfjörð og höfuðborgarsvæðið, og mögulega einnig fyrir landsvæðið utar á Reykjanesskaga. Einnig gæti svæðið gegnt lykilhlutverki í að mæta vaxandi raforkuþörf landsins.
Á þessari stundu liggja ekki fyrir nægar upplýsingar til að meta nýtingarmöguleika svæðisins að fullu þótt vísbendingar séu um að svæðið sé gjöfult af orku. Rannsóknarboranirnar eru því fyrst og fremst liður í því að kanna fýsileika svæðisins og dýpka þekkingu á jarðfræðilegum aðstæðum þar.
Löng saga rannsókna
Jarðhitarannsóknir á Krýsuvíkursvæðinu eiga sér langa sögu og má rekja fyrstu skráðu könnunina allt aftur til ársins 1756 þegar gerðar voru rannsóknir á hverum og leirpottum í Krýsuvík, sem teljast meðal fyrstu vísindalegu jarðfræðirannsókna á Íslandi.
Í gegnum árin hafa síðan farið fram margvíslegar rannsóknir og boranir á svæðinu. Á árunum 1941–1951 voru boraðar fjölmargar grunnar holur í nágrenni Krýsuvíkur með það að markmiði að afla gufu til rafmagnsframleiðslu fyrir Hafnarfjörð og höfuðborgarsvæðið. Borholurnar leiddu í ljós jarðhita en ekki í nægjanlegu miklu magni til að hefja raforkuframleiðslu á þeim tíma. Holurnar þóttu samt gagnlegar sem undanfari frekari rannsókna síðar meir.
Aukinn kraftur í rannsóknir með djúpborunum
Orkustofnun hóf kerfisbundnar rannsóknir á svæðinu árið 1970 og í kjölfarið voru boraðar nokkrar djúpar rannsóknarholur. Á síðari árum hefur umfang rannsókna aukist verulega, sérstaklega frá aldamótunum 2000. Þá hófust boranir í Trölladyngju á vegum Hitaveitu Suðurnesja sem síðar var skipt upp í tvö fyrirtæki, HS Orku og HS Veitur. Í þessum borunum mældist mjög hár jarðhiti eða yfir 350°C í dýpstu holum (TR-1 og TR-2). Auk þess hafa verið gerðar víðtækar viðnámsmælingar með TEM og MT aðferðum, kortlagning á jarðhitaeinkennum og rannsóknir á gastegundum og jarðefnafræði svæðisins.