Chat with us, powered by LiveChat Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

Sjálfbærni í fyrirrúmi

Auðlindagarður HS Orku er leiðandi fyrirtækjaklasi á landsvísu þar sem fyrirtæki nýta sér fjölbreytta og endurnýjanlega auðlindastrauma frá tveimur jarðvarmavirkjunum HS Orku á Reykjanesskaganum. Í Auðlindagarðinum gefst fyrirtækjum einstakt tækifæri til að byggja upp starfsemi sína með sjálfbærri auðlindanýtingu og lágmarkssóun.

Sjálfbærni í framkvæmd

Staðsetning Auðlindagarðsins er afar hentug, mitt á milli alþjóðaflugvallarins í Keflavík og höfuðborgarsvæðisins. Auðlindagarðurinn er einstakur vettvangur sjálfbærnirannsókna, þróunar og fjölnýtingu auðlinda. Þar býðst fyrirtækjum að nýta fjölbreytta endurnýjanlega auðlindastrauma frá jarðvarma sem styðja við hringrásarhagkerfið og sjálfbæra framleiðslu afurða.

Í mótun í hálfa öld

Auðlindagarðurinn hefur þróast í kringum jarðvarmavirkjanir HS Orku allt frá stofnun Hitaveitu Suðurnesja, forvera HS Orku, árið 1974. Fyrirtækin í Auðlindagarðinum hafa frá upphafi verið brautryðjendur í því að skapa verðmæti úr fjölbreyttum auðlindastraumum frá jarðvarma, straumum sem annars færu til spillis.

Auðlindagarðurinn samanstendur af tveimur fyrirtækjaklösum á Reykjanesskaganum þar sem í boði eru iðnaðarsvæði til uppbyggingar ásamt aðgangi að endurnýjanlegri raforku og öðrum verðmætum auðlindastraumum.

Samstarfsaðilar okkar

Um tugur fyrirtækja starfar nú í Auðlindagarðinum í ýmsum geirum atvinnulífsins. Við bjóðum velkomin ný fyrirtæki sem deila gildum okkar og framtíðarsýn um sjálfbæra auðlindanýtingu og hringrásarhagkerfi.

Við hvetjum áhugasöm fyrirtæki til þess að hafa samband við okkur og saman skoðum við grundvöllinn fyrir sjálfbært samstarf til framtíðar.

DSC0764

Samstarfsaðilar okkar

„Stolt Sea Farm hóf uppbyggingu í Auðlindagarðinum árið 2012 þar sem skilyrðin voru kjörin til að rækta flatfisk í hæsta gæðaflokki í sjálfbærum og umhverfisvænum framleiðslukerfum. Þar nýtum við endurnýjanlega orku og ylsjó frá Reykjanesvirkjun. Staðsetningin á milli tveggja heimsálfa gerir okkur einnig kleift að koma framleiðslunni inn á tvö stór markaðssvæði með þeim ávinningi sem því fylgir. Það gerir Auðlindagarðinn að frábærum stað fyrir fjárfestingu.“

James Hall
Framkvæmdastjóri, Stolt Sea Farm

Auðlindastraumar í Auðlindagarðinum

Endurnýjanleg raforka

Auðlindagarðurinn býður fyrirtækjum endurnýjanlega raforku á samkeppnishæfu verði. Við bjóðum fyrirtækjum í viðskiptum við okkur raforkukaupsamninga til langs tíma sem tryggja fyrirsjáanleika í orkuverði. 

Kjörin staðsetning

Við bjóðum iðnaðarlóðir á besta stað:

  • 50 hektarar af iðnaðarlóðum með möguleika á beinum tengingum við virkjanir og aðgang að fjölbreyttum auðlindastraumum.
  • Ýmsar stærðir lóða í boði til langtímaleigu.
  • Aðeins um 30 km akstur frá höfuðborgarsvæðinu, 20 km frá Helguvíkurhöfn og rúmlega 10 km frá Keflavíkurflugvelli.
Hs Orka1687

Tækifærin liggja í Auðlindagarðinum

Í Auðlindagarðinum geta fyrirtæki eflt rekstur sinn með ábyrgri auðlindanýtingu og lágmarkssóun ásamt því að verða hluti af hringrásarhagkerfi til framtíðar.