Nýtt vörumerki HS Orku, sem leit dagsins ljós í desember í fyrra, hlaut á mánudag verðlaunin Besta sjálfbæra vörumerki heims (The world‘s best green brand) á CHARGE ráðstefnunni 2026 sem fram fór í Flórens á Ítalíu í byrjun vikunnar. Alþjóðlega vörumerkjastofan Brandpie á heiðurinn að hönnun vörumerkisins en samstarf HS Orku og Brandpie hófst fyrir tveimur árum.
Íris Björk Rúnarsdóttir og Birna Lárusdóttir veittu verðlaunum viðtöku fyrir hönd HS Orku á hátíðarkvöldverði ráðstefnunnar á mánudagskvöld.
Sjálfbærni kjarninn í vörumerkinu
Í niðurstöðu dómnefndar kom fram að nýja vörumerki HS Orku þætti frísklegt, manneskjulegt og jarðtengt vörumerki sem tengir endurnýjanlega orku við samfélög á áhrifaríkan hátt. Það þótti segja einlæga og sannfærandi sögu sem ætti rætur í íslenskri menningu: „Sjálfbærni er kjarninn í vörumerki sem einkennist af virðingu, seiglu og raunverulegri samfélagslegri nálgun.“
CHARGE tengir orkufyrirtæki og vörumerkjahönnun
CHARGE ráðstefnan var fyrst haldin á Íslandi fyrir tíu árum en það er vörumerkjastofan Brandr, með Friðrik Larsen í stafni, sem stendur að henni. Undanfarin ár hefur ráðstefnan farið fram í ólíkum borgum Evrópu auk þess sem önnur ráðstefna, undir sama nafni, er árlega haldin í ólíkum borgum Bandaríkjanna.
Mikilvægi vörumerkjastjórnunar í miðlun upplýsinga
Á CHARGE ráðstefnunni eru veitt verðlaun í fimm flokkum, auk viðurkenninga til ungra frumkvöðla. Vrðlaunin Besta sjálfbæra vörumerkið heiðrar fyrirtæki sem hafa náð sjálfbærnimarkmiðum sínum, eða tekið stór skref að þeim, með áhrifamiklum verkefnum sem styðja við orkuskiptin.Verðlaunin varpa ljósi á mikilvægi vörumerkjastjórnunar við að miðla skýrt nýsköpun og virði sjálfbærrar tækni. Þau vekja athygli á vörumerkjum sem hraða orkuskiptum með því að vinna bug á tregðu gagnvart breytingum, setja á markað grænar neytendavörur og þjónustu, innleiða hvataáætlanir eða fjárfesta í rafvæðingu samgangna, húshitunar, iðnaðar og annarra lykilinnviða samfélagsins.