Chat with us, powered by LiveChat Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

HS Orka á World Geothermal Conference 2026

Untitled Design 16

HS Orka mun eiga góðan hóp fulltrúa á World Geothermal Congress 2026 sem fram fer í Calgary í Kanada í næstu viku, 8.-11. júní. Alls sækja sex starfsmenn úr hópi sérfræðinga fyrirtækisins ráðstefnuna að þessu sinni en hún er sú stærsta sinnar tegundar í heiminum.  

Okkar fólk tekur virkan þátt í ráðstefnunni en Lárus Þorvaldsson, yfirforðafræðingur, flytur erindi um vöktunarkerfi vegna eldgosa, Lilja Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri auðlinda, stýrir m.a. pallborðsumræðum í vinnustofunni Our Climate Future, Björk Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála, tekur þátt í  lokuðu hringborði um fjármögnun jarðvarmaverkefna og Alma Gytha Huntingdon-Williams, verkefnastjóri í auðlindastýringu, er meðstjórnandi í einni af vinnustofum ráðstefnunnar.  

Aðrir fulltrúar HS Orku á þinginu verða Ásbjörn Blöndal, verkefnastjóri og fyrrverandi framkvæmdastjóri auðlindasviðs og Lárus Guðmundsson, sérfræðingur framkvæmda.  

Í erindinu Harnessing Geothermal Infrastructure for Volcanic Early Warning mun Lárus Þorvaldsson fjalla um það hvernig nýta má borholur og vöktunarkerfi til að efla eldgosavöktun og styrkja viðvörunarkerfi vegna náttúruvár.  

Lilja Magnúsdóttir tekur þátt í vinnustofunni Our Climate Future, þar sem hún stýrir pallborðsumræðunum Deep, Disruptive and Defining: Next Generation Geothermal. Þá tekur hún einnig þátt í pallborðinu Geothermal Pathways: From Vision to Bankability, þar sem fjallað verður um hvernig þróa má jarðhitaverkefni frá fyrstu hugmyndum yfir í fjármögnunarhæf og framkvæmanleg verkefni. 

Alma Gytha Huntingdon-Williams er meðstjórnandi (co-host) vinnustofunnar IEA Gas Management Task Force. Þar verða kynntar fyrstu niðurstöður alþjóðlegs samstarfsverkefnis sem beinist að því hvernig losun frá jarðhitavirkjunum er vöktuð, mæld og skráð, auk þess sem fjallað verður um leiðir til að bæta þessi ferli. 

Við hvetjum ráðstefnugesti til að hitta fulltrúa HS Orku á WGC og fræðast nánar um starfsemi fyrirtækisins og þau fjölbreyttu jarðhitaverkefni sem starfsfólk fyrirtækisins vinnur að. HS Orkufólk verður meðal annars aðgengilegt á bás Green by Iceland kl. 9:00 á þriðjudagsmorgun, 9. júní.

Fréttir

Skoða allar fréttir
HS Orka á World Geothermal Conference 2026 Untitled Design 16

03.06.2026

HS Orka á World Geothermal Conference 2026

Lesa nánar
Annar áfangi rannsóknarborana hafinn á Krýsuvíkursvæðinu Media 4

21.05.2026

Annar áfangi rannsóknarborana hafinn á Krýsuvíkursvæðinu

Lesa nánar
Sjálfbærniskýrsla HS Orku varpar ljósi á áhrif jarðhræringa Dsc0905

13.05.2026

Sjálfbærniskýrsla HS Orku varpar ljósi á áhrif jarðhræringa

Lesa nánar
Fjórtán milljónir í styrki úr Rannsóknasjóði HS Orku Hsorka 24

12.05.2026

Fjórtán milljónir í styrki úr Rannsóknasjóði HS Orku

Lesa nánar
Stjórnvöld og orkufyrirtæki þróa næstu kynslóðar jarðhita Undirritun (1)

11.05.2026

Stjórnvöld og orkufyrirtæki þróa næstu kynslóðar jarðhita

Lesa nánar
Besta rekstrarár HS Orku frá upphafi Hsorka Tomas Bk212636

04.05.2026

Besta rekstrarár HS Orku frá upphafi

Lesa nánar
Nýr formaður KÍO úr röðum HS Orku Elisabetblondal20260319172632

09.04.2026

Nýr formaður KÍO úr röðum HS Orku

Lesa nánar
Heimildarmyndin Í takti við náttúruna B93a8109

26.03.2026

Heimildarmyndin Í takti við náttúruna

Lesa nánar
HS Orka hlýtur Teninginn Vfi 26 03 20 00010 Web Size

20.03.2026

HS Orka hlýtur Teninginn

Lesa nánar