Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

HS Orka tekur þátt í rafvæðingu strandveiðiflotans

Img 7328
Samstarfsaðilarnir um rafvæðingu strandveiðiflotans við undirritun samstarfssamningsins í gær.

Í gær var undirritaður í Reykjavík samstarfssamningur milli Grænafls á Siglufirði og suður-kóreskra aðila um samstarf sem miðar að því að rafvæða íslenska strandveiðiflotann. HS Orka og Rafal eru einnig þátttakendur í verkefninu en hlutverk HS Orku verður að byggja upp hleðsluinnviði fyrir flotann og síðar selja raforku til dagróðrabáta í höfnum landsins. 

Tímamót í tvennum skilningi 

Dagurinn í gær markaði tímamót í verkefninu  sem nú er komið af undirbúningsstigi og yfir á framleiðslustig en Grænafl hefur unnið að undirbúningi þess um tveggja ára skeið. Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá HS Orku, fagnar áfanganum sem náðist í gær. Hann segir verkefnið vera upphafið að nýjum kafla í orkuskiptum landsins og mörg spennandi og áhugaverð verkefni bíði við rafvæðingu flotans. 

Siglfirskur bátur verður upphafið 

Samstarfið við Suður-Kóreumenn felur í byrjun í sér þróun og breytingu á íslenskum fiskibáti frá Siglufirði, Oddverja SI frá, og gera áætlanir ráð fyrir að hann verði kominn í notkun næsta sumar. Fjármagn hefur verið tryggt til þess að hefja framleiðslu bæði á Íslandi og í Suður-Kóreu. 

Haft er eftir Kolbeini Óttarssyni Proppé, framkvæmdastjóra Grænafls að enn vanti nokkuð upp á hleðsluinnviði við hafnir landsins en nægt rafmagn sé til staðar til þess að anna orkuskiptum flotans. Orkuskipti strandveiðiflotans hér á landi gætu sparað losun á tugum þúsunda tonna af koltvísýringi. 

HS Orka virkur þátttakandi í orkuskiptunum 

Haustið 2024 skrifuðu HS Orka og Grænafl undir samstarfssamning um uppsetningu hleðslustöðva fyrir minni fiskiskip og vinnu að orkuskiptum. Hluti af vinnu Grænafls við að stuðla að orkuskiptum í minni fiskiskipum er að koma upp hleðslustöðvum fyrir dagróðrabáta í höfnum víða um land. HS Orka og Grænafl vinna sameiginlega að því verkefni en styrkur fékkst á sínum tíma úr Orkusjóði til þess. 

HS Orka hefur tekið virkan þátt í orkuskiptum með uppsetningu hraðhleðslustöðva fyrir rafbíla um allt land í samstarfi við InstaVolt auk þess að bjóða fyrirtækjum og einstaklingum lausnir fyrir hleðslu rafbíla heima fyrir á hagstæðum kjörum. 

Graenafl 1
Kolbeinn Óttarsson Proppé, framkvæmdastjóri Grænafls, undirritar samninginn fyrir hönd íslensku aðilanna.

Fréttir

Skoða allar fréttir
Nýr raforkusamningur Norðuráls og HS Orku tekur gildi A Century Ice1920x1080 41

01.10.2026

Nýr raforkusamningur Norðuráls og HS Orku tekur gildi

Lesa nánar
HS Orka tekur þátt í rafvæðingu strandveiðiflotans Img 7328

17.09.2026

HS Orka tekur þátt í rafvæðingu strandveiðiflotans

Lesa nánar
Opið fyrir umsóknir í Samfélagssjóð HS Orku Safsadfa

02.09.2026

Opið fyrir umsóknir í Samfélagssjóð HS Orku

Lesa nánar
Mikill viðbúnaður á Reykjanesi vegna almyrkvans Picture5 603876

11.08.2026

Mikill viðbúnaður á Reykjanesi vegna almyrkvans

Lesa nánar
HS Orka kaupir Múlavirkjun Múlavirkjun Á Snæfellsnesi

28.07.2026

HS Orka kaupir Múlavirkjun

Lesa nánar
HS Orka leggur Jarðhitaskólanum lið Jarðhitaskóli Unesco 2026 Lýst (1)

16.07.2026

HS Orka leggur Jarðhitaskólanum lið

Lesa nánar
HS Orka þátttakandi í rannsóknum sem styrkja viðbúnað Íslands gagnvart náttúruvá Rannís Styrkir Afhentir

01.07.2026

HS Orka þátttakandi í rannsóknum sem styrkja viðbúnað Íslands gagnvart náttúruvá

Lesa nánar
HS Orka á World Geothermal Conference 2026 Untitled Design 16

03.06.2026

HS Orka á World Geothermal Conference 2026

Lesa nánar
Annar áfangi rannsóknarborana hafinn á Krýsuvíkursvæðinu Media 4

21.05.2026

Annar áfangi rannsóknarborana hafinn á Krýsuvíkursvæðinu

Lesa nánar