Chat with us, powered by LiveChat Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

HS Orka leggur Jarðhitaskólanum lið

Jarðhitaskóli Unesco 2026 Lýst (1)
Nemendur Jarðhitaskólans fyrir utan Svartsengisvirkjun.

Árlega tekur HS Orka á móti hópi erlendra nemenda sem stundar nám í Jarðhitaskóla GRÓ, þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu, en skólinn starfar undir merkjum UNESCO. Heimsóknin er mikilvægur liður í námi nemendanna sem dvelja að jafnaði á Íslandi í hálft ár til að fræðast um nýtingu jarðvarma.

Jarðhitaskólinn hefur verið starfræktur hér á landi samfellt í 48 ár og á þeim tíma hefur skólinn miðlað þekkingu Íslendinga á jarðhita til mörg hundruð nemenda frá ýmsum þróunarríkjum, einkum Afríkuríkjum.

Nýjasta orkuverið skoðað

Hópurinn sem kom í heimsókn til okkar á dögunum taldi um 30 nemendur en það var Lárus Þorvaldsson, yfirforðafræðingur, sem flutti fyrirlestur um HS Orku og sá síðan um leiðsögn; fyrst um Svartsengisvirkjun, þar sem nýjasta orkuverið okkar var skoðað, og síðan í Reykjanesvirkjun.

Sýnatökur og kennsla

Nemendurnir fá einnig árlega sérhæfða kennslu í því hvernig taka á sýni á háhitasvæðum, bæði úr borholu og gufuauga, og fór sú kennsla nýverið fram við borholur okkar í grennd við Reykjanesvirkjun. Þessu til viðbótar hefur Yngvi Guðmundsson, framkvæmdastjóri þróunar og framkvæmda, um árabil sinnt kennslu á námskeiðum skólans í þróun verkefna í jarðhita.

Með þátttöku sinni í og liðsinni við verkefni Jarðhitaskólans leggur HS Orka þannig lóð á vogarskálarnar við útbreiðslu á þeirri einstöku og miklu þekkingu á jarðvarma og nýtingu hans sem Íslendingar búa yfir.

20260713 134638 (1)
Við sýnatöku í grennd við Reykjanesvirkjun

Fréttir

Skoða allar fréttir
Mikill viðbúnaður á Reykjanesi vegna almyrkvans Picture5 603876

11.08.2026

Mikill viðbúnaður á Reykjanesi vegna almyrkvans

Lesa nánar
HS Orka kaupir Múlavirkjun Múlavirkjun Á Snæfellsnesi

28.07.2026

HS Orka kaupir Múlavirkjun

Lesa nánar
HS Orka leggur Jarðhitaskólanum lið Jarðhitaskóli Unesco 2026 Lýst (1)

16.07.2026

HS Orka leggur Jarðhitaskólanum lið

Lesa nánar
HS Orka þátttakandi í rannsóknum sem styrkja viðbúnað Íslands gagnvart náttúruvá Rannís Styrkir Afhentir

01.07.2026

HS Orka þátttakandi í rannsóknum sem styrkja viðbúnað Íslands gagnvart náttúruvá

Lesa nánar
HS Orka á World Geothermal Conference 2026 Untitled Design 16

03.06.2026

HS Orka á World Geothermal Conference 2026

Lesa nánar
Annar áfangi rannsóknarborana hafinn á Krýsuvíkursvæðinu Media 4

21.05.2026

Annar áfangi rannsóknarborana hafinn á Krýsuvíkursvæðinu

Lesa nánar
Sjálfbærniskýrsla HS Orku varpar ljósi á áhrif jarðhræringa Dsc0905

13.05.2026

Sjálfbærniskýrsla HS Orku varpar ljósi á áhrif jarðhræringa

Lesa nánar
Fjórtán milljónir í styrki úr Rannsóknasjóði HS Orku Hsorka 24

12.05.2026

Fjórtán milljónir í styrki úr Rannsóknasjóði HS Orku

Lesa nánar
Stjórnvöld og orkufyrirtæki þróa næstu kynslóðar jarðhita Undirritun (1)

11.05.2026

Stjórnvöld og orkufyrirtæki þróa næstu kynslóðar jarðhita

Lesa nánar