Viðskiptaskilmálar - HS Orka Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

Viðskiptaskilmálar

Almennir skilmálar HS Orku 

 1. Almennt gildissvið

Eftirfarandi eru viðskiptaskilmálar HS Orku hf., kt. 680475-0169, Svartsengi, 241 Grindavík., Símanúmer 520-9300., hsorka@hsorka.is 

Viðskiptaskilmálar þessir gilda um öll viðskipta- og samningssambönd HS Orku og viðskiptavina fyrirtækisins að meðaltöldum raforkusölusamningum, nema um annað sé sérstaklega samið.  Viðskiptaskilmálar þessir gilda um alla raforkusölusamninga sem HS Orka gerir við viðskiptavini sína. Athugið að viðskiptaskilmálar þessir taka eingöngu til sölu á raforku, en ekki til flutnings og dreifingar hennar. HS Orka bera enga ábyrgð á flutningi eða dreifingu raforku.  

Um raforkusölu HS Orku gilda raforkulög nr. 65/2003, reglugerð um framkvæmd raforkulaga nr. 1040/2005 og reglugerð um raforkuviðskipti og mælingar nr. 1150/2019.  

2. Notkun 

Með beiðni um að koma í viðskipti við HS Orku veitir viðskiptavinur fyrirtækinu umboð til að afla upplýsinga um raforkunotkun sína frá viðkomandi dreifiveitu eða Netorku. Umboðið nær meðal annars til upplýsinga um númer veitu og mælis, dreifisvæði, heimilisfang, dreifiveitutaxta, áætlaða ársnotkun, meðalnotkun, síðasta álestur, mæliaðferð, stöðu mælis, margföldunarstuðul og stafafjölda mælis. Ef um tímamældar veitur er að ræða þá eru notkunartölur afhentar allt að 24 mánuði aftur í tímann. Dreifiveitufyrirtæki ber ábyrgð á mælingu á orkunotkun kaupanda á veitusvæði sínu. Til að áætla um orkunotkun nýtir fyrirtækið sér raforkunotkun viðskiptavinar. Ef um er að ræða nýjan viðskiptavin sem ekki hefur áður keypt raforku er HS Orku heimilt að áætla notkun hans með hliðsjón af sambærilegri notkun.   

3. Verð og greiðsluskilmálar

Verð fer eftir almennri verðskrá HS Orku hverju sinni, nema um annað sé samið. Almenn verðskrá er ávallt uppfærð og kynnt á vefsíðu HS Orku. Verð viðskiptavinar kemur fram á útgefnum orkureikningi viðskiptavinar. Orkugjaldið (kr/kWh) greiðist fyrir hverja mælda orkueiningu í beinu hlutfalli við orkunotkun.  

Viðskiptavinur skal greiða samkvæmt útgefnum  mánaðarlegum reikningum frá HS Orku fyrir raunnotkun eða samkvæmt áætlun undangengins mánaðar. 

Auk greiðslu fyrir verð á raforku ber viðskiptavini að greiða þá skatta og þau gjöld sem HS Orka innheimtir á grundvelli gildandi laga hverju sinni, þ.m.t. virðisaukaskatt, eins og hann er ákveðinn í lögum um virðisaukaskatt nr. 50/1988.  Verði breyting á gjöldum eða sköttum hefur það því áhrif á þá fjárhæð sem innheimt er, t.a.m. ef gjöld fyrir innmötun raforku frá virkjunum HS Orku eða virkjunum sem HS Orka kaupir raforku af verða lögð á fyrirtækið af hálfu opinberra flutnings- eða dreifiaðila áskilur HS Orka sér rétt til að innheimta þau gjöld af viðskiptavinum fyrirtækisins á mánaðarlegum reikningum í hlutfalli við notkun.  

HS Orka áskilur sér rétt til að innnheimta seðilgjald eða tilkynningar- og greiðslugjald vegna birtingar reikninga og er gjaldið breytilegt eftir því hvort um greiðsla er greidd með  greiðslukorti eða reikningi í netbanka.  

Verði reikningur ekki greiddur á eindaga reiknast dráttarvextir af viðskiptaskuldinni frá gjalddaga til greiðsludags í samræmi við III. kafla laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu.   Auk dráttarvaxta innheimtir HS Orka allan innheimtukostnað samkvæmt gildandi reglum. HS Orku er jafnframt heimilt að stöðva orkuafhendingu til viðskiptavinar með aðstoð dreifiveitu, ef viðskiptaskuld lendir í vanskilum. Í slíkum tilvikum er dreifiveitu heimilt að innheimta lokunar- og opnunargjöld hjá viðskiptavini.   

4. Uppsögn samnings 

Nema um annað sé samið eru raforkusölusamningar HS Orku og almennra notenda ótímabundnir. Sé raforkusölusamningur ótímabundinn er báðum aðilum er heimilt að segja upp raforkusölusamning  með þriggja vikna fyrirvara.  

Uppsögn raforkusölusamnings getur verið með rafrænum eða skriflegum hætti. 

 5.Riftun og stöðvun raforkuveitingar

Í samræmi við 12. gr. reglugerðar nr. 1150/2019 er HS Orku  heimilt að rifta samningi um raforkuviðskipti við almennan notanda vegna vanskila á greiðslum enda hafi viðkomandi notanda áður verið veitt skrifleg aðvörun.  HS Orku er heimilt að rifta samningi án fyrirvara verði bú almenns notanda tekið til gjaldþrotaskipta. Almennum notanda er einnig heimilt að rifta samningi við HS Orku vanefni fyrirtækið skyldur sínar með verulegum hætti. Í samræmi við 11. gr. reglugerðar nr. 1150/2019 er HS Orku heimilt að stöðva raforkuafhendingu vegna vanskila viðskiptavinar með því að beina skriflegri beiðni þess efnis til dreifiveitu að undangenginni viðvörun sem send skal viðskiptavini með 30 daga fyrirvara.  

6. Nýr notandi  

HS Orka áskilur sér rétt til að synja viðskiptavini áður en þjónusta er veitt. HS Orku er í því skyni og i tengslum við afgreiðslu umsókna heimilt að leita upplýsinga um viðskiptavin, svo sem með öflun upplýsinga frá Creditinfo. HS Orku er einnig heimilt að synja nýjum viðskiptavini um afhendingu á raforku með vísan til fyrri vanskila, fjárhagsstöðu og ef er fyrirséð að notkun viðskiptavinar er þess eðlis að HS Orka á erfitt um vik að afhenda umbeðið magn af orku til hans. 

 Hafni  HS Orka raforkuviðskiptum við viðskiptavin getur hann borið það undir Orkustofnun.  

7. Ábyrgðarreglur 

HS Orka ber aðeins ábyrgð á þjónustu sem það veitir samkvæmt 1. gr. skilmálanna og ber enga ábyrgð á skyldum flutningsfyrirtækja og dreifiveita samkvæmt raforkulögum nr. 65/2003, svo sem í tengslum við uppsetningu, rekstur og viðhald mælibúnaðar, söfnun, staðfestingu og dreifingu mæligagna eða skömmtunar á raforku vegna umframeftirspurnar. HS Orku er heimilt, án ábyrgðar, að skerða afhendingu á raforku ef þörf er á til að bregðast við aðstæðum er varða orkuöflun, enda sé viðskiptavini tilkynnt um slíka skerðingu. 

Ábyrgð HS Orku á tjóni er í öllum tilvikum takmörkuð við beint tjón sem viðskiptavinur verður fyrir og ber HS Orka enga ábyrgð á óbeinu tjóni, afleiddu tjóni, eða tjóni sem þriðji aðili kann að verða fyrir.  

HS Orka ber ekki ábyrgð á tjóni sem rekja má til óviðráðanlegra atvika, þ.m.t. hvers lags force majeure (náttúruhamfarir, styrjaldir, verkföll, orkuskortur o.fl.),  

Að öðru leyti fer um ábyrgð viðskiptavinar svo og HS Orku eftir almennum reglum skaðabótaréttar og laga og reglugerða er varða raforkuþjónustu. 

Ef erfiðleikar eru við orkuöflun er HS Orku heimilt að skerða afhendingu raforku, án ábyrgðar, en tilkynning um slíka skerðingu er tilkynnt eins og unnt er kæmi til þess.  

 8. Breytingar

HS Orka áskilur sér einhliða rétt til þess að breyta viðskiptaskilmálum og taka breytingarnar gildi frá og með birtingu þeirra á vefsíðu HS Orku. HS Orka getur fyrirvaralaust gert breytingar á verðskrá eða öðrum kjörum, þjónustugjöldum eða hafið gjaldtöku fyrir áður gjaldfrjálsa þjónustu.  

9. Persónuvernd 

Til þess að uppfylla skyldur raforkusölusamnings skv. skilmálum og lögum þarf HS Orka að vinna með persónuupplýsingar um viðskiptavini. Öll vinnsla persónuupplýsinga er takmörkuð við þær persónuupplýsingar sem nauðsynlegar eru vegna viðskiptasambandsins. Öll meðferð persónuupplýsinga fer fram í samræmi við ákvæði laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglna settum samkvæmt þeim. Persónuverndarstefna HS Orku er aðgengleg á vefsíðu HS Orku og telst hluti af skilmálum þessum. 

10. Varnarþing

Komi upp ágreiningur milli HS Orku og viðskiptavinar þá skulu báðir aðilar leitast við að leysa hann í sátt og samlyndi. Verði sáttum ekki komið að skulu ágreiningsmál rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. 

11. Gildistaka 

Viðskiptaskilmálar þessir taka gildi frá og með 25.03.2026