Fimm stór rannsóknaverkefni hlutu nýverið styrki úr Markáætlun um náttúruvá og er HS Orka þátttakandi í tveimur þeirra. Heildarupphæð styrkja er um 600 milljónir króna. Verkefnin voru kynnt ráðherra og gestum í gær en Markáætlunin heyrir undir Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.
Verkefnunum fimm er ætlað að stórefla þekkingu, bæta forvarnir og styðja við betri ákvarðanatöku þegar náttúruógnir steðja að. Þau endurspegla þá fjölbreyttu þekkingaruppbyggingu sem nú á sér stað á sviði náttúruvár á Íslandi og hvernig rannsóknir geta stutt stjórnvöld, viðbragðsaðila, atvinnulíf og almenning.
Lesa má nánar um öll verkefnin fimm á vef stjórnarráðsins en verkefnin tvö sem HS Orka tekur þátt í eru:
REY-READY – Næsta kynslóð jarðskjálftavöktunar
Verkefnið miðar að því að þróa nýjar aðferðir til að greina jarðskjálfta, kvikuhreyfingar og sprungur á Reykjanesskaga með því að nýta umfangsmikið net jarðskjálftamæla og sameiginleg gögn rannsóknaraðila. Markmiðið er að bæta nákvæmni vöktunar og styrkja langtímaáhættumat og ákvarðanatöku vegna náttúruvár.
Að verkefninu standa Háskóli Íslands, ÍSOR, Veðurstofa Íslands, Matorka og HS Orka.
TRACE – Sviðsmyndir eldfjallavár við Krýsuvík
Í verkefninu er möguleg framtíðarvirkni í eldstöðvakerfi Krýsuvíkur rannsökuð með áherslu á kvikuhreyfingar, jarðhita og áhrif jarðskorpuhreyfinga. Verkefnið mun nýta landmælingar og töluleg líkön til að bæta skilning á hættu tengdri framtíðarumbrotum á svæðinu.
Að verkefninu standa Háskóli Íslands, Veðurstofa Íslands, Vatnaskil og HS Orka.
Höfum lært að greina betur merki náttúrunnar
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, ávarpaði gesti á kynningunni í gær og lagði í máli sínu áherslu á mikilvægi rannsókna fyrir öryggi samfélagsins:
„Þekking er öflugasta verkfærið sem við eigum til að byggja upp öruggara samfélag. Með rannsóknum og tækniframförum getum við aukið viðbúnað, dregið úr áhættu og eflt viðnámsþrótt samfélagsins. Þótt náttúruöflin verði aldrei fyllilega fyrirsjáanleg höfum við lært að greina betur merki þeirra og skilja þau. Sú þekking gerir okkur kleift að verja mannslíf, innviði og verðmæti. Verkefni okkar er að halda áfram að efla þá þekkingu og þróa enn betri lausnir.“