Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

Jarðhitasvæðin við Sveifluháls og Austurengjar í Krýsuvík

Vorið 2024 undirrituðu Hafnarfjarðarbær og HS Orka samning um heimild til rannsókna, landnota, lóðarleigu og nýtingu auðlindaréttinda í tengslum við mögulega nýtingu auðlinda í Krýsuvík. Markmið samningsins var að kanna möguleika þess að virkja jarðvarma og vinna grunnvatn í landi Krýsuvíkur á hagkvæman og umhverfisvænan hátt. Rannsóknarboranir HS Orku hófust vorið 2025 þegar fyrsta djúpa rannsóknarborholan var boruð við Sveifluháls. 

Krýsuvíkursvæðið hefur lengi verið talið gjöfult jarðhitasvæði til nýtingar fyrir orkuvinnslu. Vonir standa til þess að framleiða þar heitt vatn til húshitunar fyrir Hafnarfjörð og höfuðborgarsvæðið og raforku inn á meginflutningskerfi Landsnets.  

Áhersla verður á uppbyggingu vistvænnar ferðaþjónustu, sem fellur vel að umhverfi og náttúru, ásamt aðstöðu til útivistar auk grænnar atvinnustarfsemi á borð við þörungaræktun, náttúrulega efnavinnslu, ræktun í gróðurhúsum og fleira.  

Mannvirki falli vel að náttúru og staðháttum 

Vanda þarf til verka við hönnun og útlit mannvirkja þegar og ef til uppbyggingar kemur, þannig að þau falli vel að náttúru og sérkennum svæðisins og verði ásættanlegur hluti þess. 

Ef rannsóknirnar í Krýsuvík skila jákvæðum niðurstöðum má segja að ávinningurinn geti orðið þríþættur: 

  • Aukið orku- og heitavatnsöryggi fyrir höfuðborgarsvæðið, sérstaklega Hafnarfjörð. 
  • Uppbygging innviða sem skapar aðdráttarafl fyrir þjónustuaðila og gesti svæðisins.  
  • Fjölbreytt tækifæri  til uppbyggingar á atvinnustarfsemi í anda hringrásarhagkerfisins sem getur orðið fyrirmynd í samspili orkuvinnslu, ferðaþjónustu og náttúru. 

Rannsóknir í Krýsuvík í ríflega 80 ár 

Hugmyndir um jarðhitanýtingu í Krýsuvík eru ekki nýjar af nálinni. Þannig hafa Hafnfirðingar, sem landeigendur við Sveifluháls og Austurengjar, gefið svæðinu gaum í áratugi - bæði til raforkuvinnslu og til hitaveitu sem þjónað gæti nærliggandi þéttbýli. 

Umtalsverðar rannsóknir voru áður gerðar á Krýsuvíkursvæðinu og ná þær fyrstu sem vel eru skrásettar allt aftur til ársins 1941. Alls hafa 34 holur verið boraðar á svæðinu, bæði jarðhita- og kaldavatnsholur. Voru flestar þeirra boraðar á vegum Rafveitu Hafnarfjarðar en einnig af hinu opinbera og Orkustofnun auk HS Orku.  

Leyfismál og tímalína 

Ef rannsóknir skila tilætluðum árangri er stefnt að því að jarðvarmaver rísi í Krýsuvík. Ekki er tímabært að segja nákvæmlega til um hvar hin ýmsu mannvirki jarðvarmavinnslunnar verða staðsett. Niðurstöðurnar úr rannsóknarborununum ráða þar miklu en einnig umhverfismat framkvæmda og allt samspil við náttúru Krýsuvíkur og aðra atvinnustarfsemi á svæðinu.  

Umhverfismat fyrir fyrirhugaðar framkvæmdir í Krýsuvík er í undirbúningi en tímalína verkefnisins í heild spannar hátt í áratug. 

Varmavinnsla í Krýsuvík í þágu þjóðaröryggis 

Í kjölfar fárviðris, sem geysaði á landinu í desember 2019, vann átakshópur stjórnvalda að aðgerðalýsingu þar sem Krýsuvík var skilgreind sem sérstaklega mikilvægt svæði vegna öryggis hitaveitu á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. Einn liður í áætlun stjórnvalda til að tryggja orkuöryggi til framtíðar kveður á um að gera „könnun á sameiginlegri varmastöð í Krýsuvík fyrir Suðurnes og höfuðborgarsvæðið, undir formerkjum almannahagsmuna, þjóðaröryggis og forgangs varmavinnslu í þágu hitaveitu“. HS Orka vinnur með þessi tilmæli að leiðarljósi.