Undirbúningur vegna almyrkvans á sólu á morgun er á lokametrunum um land allt. HS Orka hefur tekið virkan þátt í þeim undirbúningi þar sem almyrkvinn verður meðal annars vel sýnilegur á Reykjanesskaganum og við Reykjanesvirkjun.
Öll almenn umferð um starfssvæði HS Orku er ávallt óheimil og almenningur mun því ekki geta virt almyrkvann fyrir sér frá svæðinu næst Reykjanesvirkjun. Vettvangsstjórn viðbragðsaðila verður aftur á móti staðsett í virkjuninni en þar er góð aðstaða sem rúmar marga og hentar til fjarskipta og funda. Slíkt aðstaða er nauðsynleg til að styðja við samhæfingu og stjórn aðgerða ef þörf krefur.
Gert er ráð fyrir miklu fjölda gesta á Reykjanesskagann til að fylgjast með þessum einstaka viðburði og því hefur undirbúningur staðið yfir um nokkurt skeið. Fulltrúar HS Orku hafa setið í stýrihópi vegna undirbúningsins ásamt fulltrúum sveitarfélaga, almannavarna, viðbragðsaðila, innviðafyrirtækja og annarra hagaðila, Markmiðið er að tryggja öryggi, samhæfingu og góða þjónustu á svæðinu. Auk aðstöðunnar í Reykjanesvirkjun hefur HS Orka meðal annars lagt sitt af mörkum með vinnu að aðgengismálum, fjarskiptum og öryggismálum.
Öryggi starfsfólks, verktaka og gesta er ávallt í fyrirrúmi hjá HS Orku og því hvetjum við alla sem heimsækja Reykjanes á morgun, 12, ágúst, að fylgja leiðbeiningum lögreglu og annarra viðbragðsaðila, virða merkingar og sýna aðgát á ferð sinni um svæðið.