Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Samfélagssjóð HS Orku en sjóðurinn hefur það að markmiði að styðja við samfélagslega jákvæð verkefni einstaklinga eða hópa. Sérstök áhersla er lögð á að styrkja verkefni í nærsamfélagi starfsstöðva HS Orku.
Fram til þessa hafa úthlutanir úr Samfélagssjóðnum verið tvær á ári, vor og haust. Nú er er sú breytingin gerð að úthlutað verður einu sinni á ári, að hausti, en árleg styrkupphæð helst óbreytt. Með breytingunni skapast aukið svigrúm til að styðja betur við einstök verkefni sem falla vel að úthlutunarviðmiðum sjóðsins.
Opið verður fyrir umsóknir á tímabilinu 1.-30. september 2026.
Á umsóknarsíðu Samfélagssjóðs HS Orku er að finna nánari upplýsingar um úthlutunarviðmið sjóðsins ásamt rafrænu umsóknarformi.