Lilja Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri auðlinda hjá HS Orku, og Finnur Sveinsson, framkvæmdastjóri sjálfbærni og aðfanga, tóku þátt í loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP31, sem fram fór í Tyrklandi dagana 9-20. nóvember. Lilja og Finnur voru hluti af sendinefnd Íslands sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og Green by Iceland stóðu að.
Nýting jarðvarma tólffölduð?
Á ráðstefnunni í ár var lögð rík áhersla á að þjóðir raungeri markmið sín í loftslagsmálum. Jarðvarmi var áberandi í umræðunni, og meðal annars var undirrituð alþjóðleg yfirlýsing um að tólffalda nýtingu jarðvarma á heimsvísu fyrir árið 2050.
„Það var gaman að sjá þann mikla áhuga sem var á jarðvarma á COP31,“ segir Lilja. „Þessi aukna áhersla skapar mikil tækifæri fyrir Ísland, enda búum við yfir áratuga reynslu og verðmætri þekkingu sem getur nýst öðrum ríkjum í orkuskiptum.“
Auðlindagarðurinn fyrirmynd í raunhæfum aðgerðum
Hér á landi eru mörg dæmi um raunhæfar aðgerðir í loftslagsmálum. HS Orka hefur meðal annars sýnt þær í verki í Auðlindagarði fyrirtækisins. Þar hefur fjölnýting auðlindastrauma lagt grunninn að fjölbreyttri fyrirtækjaflóru, allt frá ferðaþjónustu og snyrtivöruframleiðslu til eldis á laxfiski og framandi fisktegundum. Hugmyndafræði Auðlindagarðsins byggir á hringrásarhagkerfinu, þar sem afgangur eins verður auðlind annars.
Tækni- og viðskiptaumhverfið að breytast
Á ráðstefnunni komu saman stjórnvöld, fyrirtæki og sérfræðingar víða að úr heiminum. Finnur segir sjónarmið alþjóðlegra fyrirtækja hafa vakið sérstaka athygli sína.
„Það var mjög áhugavert að hlusta á fulltrúa alþjóðlegra fyrirtækja lýsa sýn sinni á það hvernig tækni- og viðskiptaumhverfið er að breytast með hliðsjón af loftslagsbreytingum og hverjar áherslur þeirra eru til framtíðar,“ segir Finnur. „Það var hressandi að heyra þá ræða hvernig hægt er, með réttu hugarfari, að snúa þeim vandamálum sem við glímum við upp í viðskiptatækifæri.“
Þétt dagskrá frá morgni til kvölds
Lilja og Finnur tóku virkan þátt í þéttskipaðri dagskrá ráðstefnunnar. Lilja tók þátt í umræðum á vegum Climate Knowledge Initiative undir yfirskriftinni Opportunities and Challenges of Geothermal. Einnig sat hún í pallborði um orkuskipti á norðurslóðum, tók þátt í hringborðsumræðum um það hvernig endurhugsa megi losun og hliðarstrauma út frá hringrásarhugsun og sat í pallborði um hlutverk jarðvarma í orkuskiptum.
Finnur tók þátt í pallborðsumræðum um loftslagsaðgerðir norrænna fyrirtækja, Nordic Companies’ Approach to Climate Action ásamt því að sækja fjölbreytta fyrirlestra og vinnustofur, einkum á sviði orkunýtingar og sjálfbærni.