Í gær hlutu 23 samfélagsverkefni styrk úr Samfélagssjóði HS Orku fyrir árið 2026. Styrkjunum var úthlutað við hátíðlega athöfn á skrifstofum HS Orku í Turninum í Kópavogi. Alls bárust 90 umsóknir í sjóðinn að þessu sinni en úthlutun fer fram einu sinni á ári. Heildarupphæð styrkja úr sjóðnum í ár nemur 10 milljónum króna.
Verkefnin sem hlutu styrki að þessu sinni eru fjölbreytt og koma víðs vegar að af landinu. Þau snúa meðal annars að geðheilbrigði og forvörnum, menntun barna og ungmenna, íþrótta- og æskulýðsstarfi og menningu.
Samfélagssjóður HS Orku styður árlega verkefni sem geta haft jákvæð áhrif á íslenskt samfélag, lífsgæði og mannlíf. Sérstök áhersla er lögð á verkefni í nágrenni starfsstöðva fyrirtækisins á sviði:
- umhverfismála, sjálfbærni og orkuskipta
- lýðheilsu og forvarna
- menntunar og fræðslu
- æskulýðsstarfs
- menningar og lista
Einnig er horft til verkefna sem tengjast þeim heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun sem HS Orka hefur innleitt í starfsemi sína.
Með styrkveitingum sem þessum vill HS Orka efla nærsamfélag sitt og stuðla jafnframt að sjálfbærari framtíð.
Úthlutað er úr sjóðnum einu sinni á ári og fer næsta úthlutun fram á sama tíma að ári. Opnað verður fyrir umsóknir á umsóknarsíðu sjóðsins 1. september 2027. Nánari upplýsingar um sjóðinn og úthlutunarviðmið má finna á vefsíðu HS Orku.
Verkefni sem hlutu styrk úr Samfélagssjóði HS Orku árið 2026:
- Gróðurhús fyrir leikskólann – Leikskólinn Gimli
- Námskeið í grjóthleðslu og grindarsmíði – Hótel Hafnir
- Hreyfing og fræðsla í rafíþróttum barna – Rafíþróttadeild Keflavíkur
- Hvenær er ég Íslendingur? – AMSIS
- Vetrartjöld – Lýðskólinn á Flateyri
- Útgáfa bókarinnar „Það þarf heilt þorp til að ala upp barn“ – Elín Björg Birgisdóttir
- Verkfræði í þágu mannúðar, vinnustofur í framhaldsskólum á Suðurnesjum – EWB Iceland
- Talnaeyjan, kennsluspil í stærðfræði fyrir grunnskóla – Andrea Kristín Bosma
- Aukið aðgengi ungs fólks á Suðurnesjum að geðheilbrigðisþjónustu – Bergið Headspace
- Pétur og úlfurinn á Vestfjörðum – Kristín Mjöll Jakobsdóttir
- Lífið í takt, geðrækt og forvarnir í skólum – Dr. Victor Guðmundsson
- Gjaldfrjálsir sálfræðitímar fyrir unga knattspyrnuiðkendur – Knattspyrnudeild Keflavíkur
- Endurbætur á heitu pottunum á Drangsnesi – Verslunarfélag Drangsness
- Efling þjónustu við fólk með vímuefnavanda á Suðurnesjum – Matthildarsamtökin
- Jákvæð miðlanotkun í grunnskólum á Suðurnesjum – Sigurður Sigurðsson
- Matarafgangar að auðlind – Menntaskólinn á Ísafirði
- Hörmungadagar: menningar- og listahátíð – Arnkatla lista- og menningarfélag
- Kraftur samfélagsins, samfélagsviðburður í Grindavík – Járngerður
- Stærðfræðikeppnin Pangea 2027 – Félag Horizon
- Uppskera, sameiginlegir matjurtagarðar í Hafnarfirði – GETA hjálparsamtök
- Orkuleiðir, útivist við starfsstöðvar HS Orku – Hlaupadagskrá.is
- Vernd og virkni í Krýsuvík – Veraldarvinir
- Jöfn tækifæri barna til íþróttaiðkunar – Skíðafélag Strandamanna