Umsókn í Samfélagssjóð HS Orku
Samfélagssjóður HS Orku hefur það að markmiði að styðja við samfélagslega jákvæð verkefni einstaklinga eða hópa og eru styrkir veittir tvisvar sinnum á ári. Næsta úthlutun fer fram haustið 2026 og opið verður fyrir umsóknir gegnum umsóknarsíðu frá 1.-30. september 2026.