Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Orkuveitan, Landsvirkjun og HS Orka undirrituðu í dag samstarfssamning um undirbúning og framkvæmd þriðju djúpnýtingarholunnar í IDDP (Iceland Deep Drilling Project) verkefninu, sem boruð verður á Nesjavöllum í árslok.
Undirritunin fór fram í húsakynnum Orkuveitunnar að Bæjarhálsi en markmið samstarfsins er að hraða þróun næstu kynslóðar jarðvarmakerfa sem hluta af langtímastefnu Íslands í orkumálum.
Að horfa lengra og feta ótroðnar slóðir
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis- orku, og loftslagsráðherra, undirritaði samninginn fyrir hönd ríkisins og hann segir að hvergi í heiminum leiki jarðhiti eins veigamikið hlutverk og á Íslandi:
„Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur er staðráðin í að styrkja enn frekar samkeppnishæfni Íslands á þessu sviði, en jafnframt að horfa lengra og feta ótroðnar slóðir. Nú er stefnan tekin djúpt ofan í jarðskorpuna til þess að beisla ofurheit jarðvarmakerfi í borholum sem gætu skilað margfalt meiri framleiðslugetu en áður hefur þekkst. Í þessu felast gríðarleg tækifæri fyrir orkukerfið okkar, verðmætasköpun og útflutning íslenskrar þekkingar, en líka fyrir orkuskiptabyltinguna og árangur í loftslagsmálum á heimsvísu.“
IDDP-2 á Reykjanesi mikilvægur grunnur
Lilja Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri auðlinda, undirritaði samninginn fyrir hönd HS Orku en fyrirtækið leggur áherslu á áframhaldandi rannsóknir á ofurheitum jarðhitakerfum með þátttöku sinni í því öfluga samstarfi sem stendur að baki IDDP-3.
„Verkefnið byggir á góðum árangri IDDP-2, sem boruð var á jarðhitasvæði HS Orku á Reykjanesi, þar sem í fyrsta sinn tókst að staðfesta ofurkrítískar aðstæður í jarðhitakerfi. Sá áfangi markaði tímamót og skapaði dýrmæta þekkingu og reynslu hér á Íslandi sem nú er nýtt markvisst við IDDP-3 til að þróa tæknina enn frekar. Með áframhaldandi rannsóknum og þróun á ofurheitum jarðhita skapast tækifæri til að auka bæði afköst og verðmætasköpun úr jarðhitakerfum framtíðarinnar,”
Orkuveitan leiðir verkefnið
Orkuveitan er leiðandi fyrirtæki í djúpborunarverkefninu að þessu sinni og þótt verkefnið sé vissulega krefjandi er það jafnframt eitt stærsta tækifæri jarðhitans til framtíðar, segir Hera Grímsdóttir, framkvæmdastýra rannsókna og nýsköpunar hjá Orkuveitunni.
„IDDP-3 er lykilskref í djúpnýtingarvegferð Orkuveitunnar og hluti af stærri sýn um að opna nýjan kafla í nýtingu jarðhita. Verkefnið snýst ekki bara um eina borholu heldur að þróa þá tækni og þekkingu sem þarf til að virkja ofurheitan jarðhita á næstu árum. Með öflugu samstarfi við stjórnvöld og önnur orkufyrirtæki getum við hraðað þessari vegferð og styrkt stöðu Íslands sem leiðandi afl í sjálfbærum orkulausnum á heimsvísu.
Eitt metnaðarfyllsta jarðhitaverkefni heims
Frá árinu 2000 hafa stærstu orkufyrirtæki landsins með stuðningi stjórnvalda og alþjóðlegra samstarfsaðila, unnið að þróun tækni sem miðar að nýtingu jarðhita við hærra hitastig en hingað til hefur almennt verið mögulegt. Tvær fyrri tilraunaholur IDDP hafa skilað mikilvægri þekkingu og fært íslenskan jarðhitageira nær því að geta hagnýtt ofurheitan jarðhita, þar sem hitastig fer yfir 350–400°C. Nú er stefnan sett á að bora þriðju holuna, IDDP-3, á Nesjavöllum í góðu samstarfi við Grímsnes- og Grafningshrepp, þar sem markmiðið er að prófa nýjar tæknilausnir og kanna hvernig megi nýta ofurheita gufu á öruggan og hagkvæman hátt til framtíðar.
„Þrátt fyrir virka samkeppni á íslenska raforkumarkaðnum hefur jarðhitageirinn staðið saman að fjölmörgum rannsóknar- og þróunarverkefnum til að styðja við framþróun og auka samkeppnisforskot geirans í heild,“ segir Bjarni Pálsson, framkvæmdastjóri Vinds og jarðvarma hjá Landsvirkjun.
„Íslenska djúpborunarverkefnið, sem staðið hefur yfir í um aldarfjórðung, er eitt besta dæmið um slíkt samstarf. Fyrsta holan í rannsóknarsamstarfinu, hola IDDP-1 sem Landsvirkjun boraði í Kröflu árið 2009, er enn heitasta jarðhitaholan sem boruð hefur verið í heiminum. Orkufyrirtæki þjóðarinnar ætlar áfram að leggja sitt af mörkum í þessu mikilvæga samstarfi.“
Nýr samningsrammi leggur áherslu á að IDDP-3 verði sameiginlegur vettvangur fyrir rannsóknir, prófanir og þekkingarsköpun.
Nýlega hlaut IDDP-3 verkefnið 310 milljóna króna styrk úr Loftslags- og orkusjóði.