Sjálfbærniskýrsla HS Orku varpar ljósi á áhrif jarðhræringa - HS Orka Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

Sjálfbærniskýrsla HS Orku varpar ljósi á áhrif jarðhræringa

Dsc0905

HS Orka hefur birt sjálfbærniskýrslu sína fyrir árið 2025 þar sem meðal annars er fjallað um áhrif jarðhræringa á Reykjanesskaga, afhendingaröryggi orku, umfangsmikil þróunarverkefni og stuðning fyrirtækisins við samfélagið. 

Órofinn rekstur þrátt fyrir eldgos 

Fram kemur í skýrslunni að árið hafi einkennst af áframhaldandi jarðhræringum á Reykjanesi og eldgosum á Sundhnúksgígaröðinni. Þrátt fyrir krefjandi aðstæður hafi tekist að halda uppi órofnum rekstri og áframhaldandi uppbyggingu. 

Metnaðarfull þróunarverkefni HS Orku 

Meðal stærstu verkefna ársins var gangsetning nýrrar 55 MW vélarsamstæðu í Svartsengisvirkjun, sem er stærsti gufuhverfill landsins. Þá hófust einnig djúpar rannsóknarboranir við Sveifluháls á Krýsuvíkursvæðinu sem marka fyrsta áfanga í frekari rannsóknum á mögulegri orkunýtingu svæðisins. 

Áhrif jarðhræringa á losun 

Í skýrslunni kemur jafnframt fram að jarðhræringar hafi haft veruleg áhrif á losun gróðurhúsalofttegunda frá Svartsengisvirkjun þar sem koldíoxíð úr kviku leitar í gegnum virkjunina í Svartsengi. Heildarlosun frá vinnslurásum Svartsengis og Reykjanesvirkjunar nam rúmlega 144 þúsund tonnum af CO2-ígildum árið 2025 og er skýrt samhengi milli aukinnar jarðvirkni og aukins magns koldíoxíðs úr vinnslurásum virkjunarinnar. 

Þessi þróun vekur upp mikilvægar spurningar um hvernig náttúruleg losun frá jarðhitasvæðum skuli metin í landsbókhaldi Íslands og í regluverki sem snýr að loftslagsmálum og orkuskiptum. 

Stuðningur við rannsóknir og nærsamfélagið 

Einnig er fjallað um samfélagsstuðning fyrirtækisins á árinu. Fyrsta úthlutun úr nýjum Rannsóknasjóði HS Orku fór fram árið 2025 en markmið sjóðsins er að efla þekkingu innan fyrirtækisins og stuðla að framförum í starfseminni og tengdum geirum. Þá var áfram úthlutað úr Samfélagssjóði HS Orku, bæði að vori og hausti, og segir í skýrslunni að metfjöldi umsókna hafi borist víðs vegar af landinu. 

Auk sjóðanna styrkti fyrirtækið fjölmörg samfélagsverkefni og viðburði á árinu, þar á meðal íþróttafélög í nærsamfélögum sínum, Heimsþing kvenleiðtoga í Reykjavík og alþjóðlegu jarðhitaráðstefnuna Iceland Geothermal Conference. 

Gullvottun í annað sinn 

Á árinu 2025 gekkst HS Orka í annað sinn undir heildstætt sjálfbærnimat EcoVadis og viðhélt gullvottun sinni. Niðurstöðurnar staðsetja HS Orku í hópi efstu 5% fyrirtækja á heimsvísu. 

Fréttir

Skoða allar fréttir
Sjálfbærniskýrsla HS Orku varpar ljósi á áhrif jarðhræringa Dsc0905

13.05.2026

Sjálfbærniskýrsla HS Orku varpar ljósi á áhrif jarðhræringa

Lesa nánar
Fjórtán milljónir í styrki úr Rannsóknasjóði HS Orku Hsorka 24

12.05.2026

Fjórtán milljónir í styrki úr Rannsóknasjóði HS Orku

Lesa nánar
Stjórnvöld og orkufyrirtæki þróa næstu kynslóðar jarðhita Undirritun (1)

11.05.2026

Stjórnvöld og orkufyrirtæki þróa næstu kynslóðar jarðhita

Lesa nánar
Besta rekstrarár HS Orku frá upphafi Hsorka Tomas Bk212636

04.05.2026

Besta rekstrarár HS Orku frá upphafi

Lesa nánar
Nýr formaður KÍO úr röðum HS Orku Elisabetblondal20260319172632

09.04.2026

Nýr formaður KÍO úr röðum HS Orku

Lesa nánar
Heimildarmyndin Í takti við náttúruna B93a8109

26.03.2026

Heimildarmyndin Í takti við náttúruna

Lesa nánar
HS Orka hlýtur Teninginn Vfi 26 03 20 00010 Web Size

20.03.2026

HS Orka hlýtur Teninginn

Lesa nánar
Spurt og svarað um meðferð og förgun útfellinga úr borholum á Reykjanesi Hsorka Reykjanes 0497

20.02.2026

Spurt og svarað um meðferð og förgun útfellinga úr borholum á Reykjanesi

Lesa nánar
Sunna verður forstjóri Rio Tinto á Íslandi Hsorka Sunna Bk213776

28.01.2026

Sunna verður forstjóri Rio Tinto á Íslandi

Lesa nánar