Sjálfbærnimat á undirbúningsstigi Hvalárvirkjunar í opnu umsagnarferli - HS Orka Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

Sjálfbærnimat á undirbúningsstigi Hvalárvirkjunar í opnu umsagnarferli

Mynd 1600X1200

Í dag hófst opið umsagnarferli á niðurstöðum HSS sjálfbærnimats, sem framkvæmt hefur verið á undirbúningsstigi Hvalárvirkjunar. Virkjun Hvalár í Ófeigsfirði í Árneshreppi, sem er í nýtingarflokki rammaáætlunar, hefur verið í undirbúningi af hálfu orkufyrirtækisins VesturVerks um langt árabil. VesturVerk er dótturfyrirtæki HS Orku. Niðurstöður matsskýrslunnar eru nú aðgengilegar á vef VesturVerks og stendur umsagnartíminn yfir í 60 daga eða frá 18. ágúst til 17. október.

Haustið 2024 framkvæmdu matsmenn á vegum HSA (Hydropower Sustainability Alliance) samtakanna um sjálfbæra vatnsorku úttekt á undirbúningsstigi Hvalárvirkjunar. Matið er gert í samræmi við alþjóðlega HSS staðalinn (Hydropower Sustainability Standard) og fól í sér umfangsmikla gagnaöflun, viðtöl við ólíka hagaðila og vettvangsferð á fyrirhugað virkjunarsvæði.

Hagaðilar og almenningur geta kynnt sér niðurstöður matsins og sent inn athugasemdir. Í kjölfar umsagnarferlis fara matsmenn yfir innsendar athugasemdir og gefa út lokaútgáfu matsskýrslunnar.
Hér fyrir neðan má nálgast hlekki í upplýsingasíðurnar á vefsíðunni og þar er meðal annars að finna hlekk í umsagnakerfi HSA samtakanna.

Íslenska: HSS sjálfbærnimat
Enska: Hydropower Sustainability Standard Assessment

Hér fyrir neðan fylgir skýringarmynd af niðurstöðum matsskýrslunnar. Samkvæmt matinu uppfyllir undirbúningsstig verkefnisins allar lágmarkskröfur HSS staðalsins. Að óbreyttu gefa niðurstöður sem taka mið af ítarlegri kröfum staðalsins til kynna að verkefnið nái gull-viðmiðum staðalsins og sé vottunarhæft sem slíkt.

Hvala Results Ice 002

Fréttir

Skoða allar fréttir
Annar áfangi rannsóknarborana hafinn á Krýsuvíkursvæðinu Media 4

21.05.2026

Annar áfangi rannsóknarborana hafinn á Krýsuvíkursvæðinu

Lesa nánar
Sjálfbærniskýrsla HS Orku varpar ljósi á áhrif jarðhræringa Dsc0905

13.05.2026

Sjálfbærniskýrsla HS Orku varpar ljósi á áhrif jarðhræringa

Lesa nánar
Fjórtán milljónir í styrki úr Rannsóknasjóði HS Orku Hsorka 24

12.05.2026

Fjórtán milljónir í styrki úr Rannsóknasjóði HS Orku

Lesa nánar
Stjórnvöld og orkufyrirtæki þróa næstu kynslóðar jarðhita Undirritun (1)

11.05.2026

Stjórnvöld og orkufyrirtæki þróa næstu kynslóðar jarðhita

Lesa nánar
Besta rekstrarár HS Orku frá upphafi Hsorka Tomas Bk212636

04.05.2026

Besta rekstrarár HS Orku frá upphafi

Lesa nánar
Nýr formaður KÍO úr röðum HS Orku Elisabetblondal20260319172632

09.04.2026

Nýr formaður KÍO úr röðum HS Orku

Lesa nánar
Heimildarmyndin Í takti við náttúruna B93a8109

26.03.2026

Heimildarmyndin Í takti við náttúruna

Lesa nánar
HS Orka hlýtur Teninginn Vfi 26 03 20 00010 Web Size

20.03.2026

HS Orka hlýtur Teninginn

Lesa nánar
Spurt og svarað um meðferð og förgun útfellinga úr borholum á Reykjanesi Hsorka Reykjanes 0497

20.02.2026

Spurt og svarað um meðferð og förgun útfellinga úr borholum á Reykjanesi

Lesa nánar