Chat with us, powered by LiveChat Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 09-16

Njarðvíkuræðin tilbúin undir næsta gos

Ferging Njarðvíkuræðarinnar, heitavatnslagnarinnar sem liggur yfir nýtt hraun frá Svartsengi til Reykjanesbæjar, hefur gengið að óskum. Lögnin er tilbúin ef hraun rennur í sama farvegi og í síðasta gosi.

Microsoftteams Image 207 (1)

Ferging Njarðvíkuræðarinnar, heitavatnslagnarinnar sem liggur yfir nýtt hraun frá Svartsengi til Reykjanesbæjar, hefur gengið að óskum og er nú talið að hún sé nú nægilega vel varin ef hraun flæðir aftur í svipuðum farvegi og í eldgosinu 8. febrúar. Einnig er búið að fergja eldri hluta lagnarinnar, sem liggur norðan megin við hrauntunguna.

Unnið er að vörnum á Svartsengislínu, háspennulínu Landsnets, en lokið hefur verið við að verja háspennumöstur sem standa úti í hrauninu og tvö ný möstur hafa verið reist á háum undirstöðum, beggja vegna hrauntungunnar. Hugsanlega verður hægt að tengja línuna á fimmtudag en ákvörðun um það verður tekin síðar í dag því vera kann að skynsamlegra sé að bíða með tengingu þar til yfirvofandi gos er afstaðið.

Microsoftteams Image 203
Microsoftteams Image 204