HS Orka og Isavia semja um uppsetningu hraðhleðslustöðva - HS Orka Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

HS Orka og Isavia semja um uppsetningu hraðhleðslustöðva

44F70c015967b6262cd48e856d347459189c2c50

HS Orka og Isavia hafa gengið frá samningum um uppsetningu á fjölda hleðslustöðva fyrir rafbíla á Keflavíkurflugvelli. Um langtímaverkefni er að ræða. Nýjar hleðslustöðvar eru ætlaðar fyrir farartæki Isavia og annarra rekstraraðila á vellinum og einnig fyrir starfsfólk þeirra, en auk þess verða eldri hleðslustöðvar uppfærðar eða þeim skipt út. Um er að ræða allt að 100 AC hleðslustöðvar og allt að 10 DC hraðhleðslustöðvar.

Samkvæmt samningnum sér HS Orka um uppsetningu og viðhald hleðslustöðvanna sem Isavia leigir af félaginu. Þá heldur HS Orka einnig utan um notkun hleðslustöðvanna og hvernig hún skiptist milli aðila. Samningurinn er gerður á grundvelli verðfyrirspurnar sem gerð var á útboðsvef Isavia í byrjun þessa árs.

„Við hjá HS Orku erum mjög spennt fyrir þessu samstarfi með Isavia”, segir Jóhann Snorri Sigurbergsson, forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá HS Orku. „Að fá tækifæri til að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem á sér stað hjá Isavia, og um leið bjóða lausnir sem auka aðgengi að hleðslustöðvum, er mikilvægt verkefni. Isavia er að gera gangskör í hleðslumálum hjá sér og við vonum að notkun rafbíla muni enn aukast hjá starfsmönnum og rekstraraðilum í framhaldi af þessu.”

„Við hjá Isavia erum afar ánægð með að hafa náð þessu samkomulagi við HS Orku,“ segir Gunnar Ingi Hafsteinsson, deildarstjóri bílastæðaþjónustu hjá Isavia. „Um langtímaframkvæmd er að ræða og þegar henni er lokið verðum við komin með nýjar hleðslustöðvar fyrir farartæki starfsfólks og fyrirtækja á flugvallarsvæðinu. Þetta hjálpar okkur að ná markmiði okkar um kolefnaleysi í eigin rekstri á Keflavíkurflugvelli fyrir árið 2030.“

Fyrsta verkefnið samkvæmt samningnum verður að uppfæra hraðhleðslustöðvar sem þegar eru til staðar fyrir farþega á P2 skammtímastæðum flugvallarins komumegin. Því næst verður þeim hleðslustöðvum á svæðinu sem þarfnast uppfærslu skipt út. Að því loknu verður ráðist í uppsetningu nýrra stöðva fyrir starfsfólk og fyrirtæki. Að endingu verður hugað að því að bæta við rafhleðslu fyrir farþega.

Fréttir

Skoða allar fréttir
Annar áfangi rannsóknarborana hafinn á Krýsuvíkursvæðinu Media 4

21.05.2026

Annar áfangi rannsóknarborana hafinn á Krýsuvíkursvæðinu

Lesa nánar
Sjálfbærniskýrsla HS Orku varpar ljósi á áhrif jarðhræringa Dsc0905

13.05.2026

Sjálfbærniskýrsla HS Orku varpar ljósi á áhrif jarðhræringa

Lesa nánar
Fjórtán milljónir í styrki úr Rannsóknasjóði HS Orku Hsorka 24

12.05.2026

Fjórtán milljónir í styrki úr Rannsóknasjóði HS Orku

Lesa nánar
Stjórnvöld og orkufyrirtæki þróa næstu kynslóðar jarðhita Undirritun (1)

11.05.2026

Stjórnvöld og orkufyrirtæki þróa næstu kynslóðar jarðhita

Lesa nánar
Besta rekstrarár HS Orku frá upphafi Hsorka Tomas Bk212636

04.05.2026

Besta rekstrarár HS Orku frá upphafi

Lesa nánar
Nýr formaður KÍO úr röðum HS Orku Elisabetblondal20260319172632

09.04.2026

Nýr formaður KÍO úr röðum HS Orku

Lesa nánar
Heimildarmyndin Í takti við náttúruna B93a8109

26.03.2026

Heimildarmyndin Í takti við náttúruna

Lesa nánar
HS Orka hlýtur Teninginn Vfi 26 03 20 00010 Web Size

20.03.2026

HS Orka hlýtur Teninginn

Lesa nánar
Spurt og svarað um meðferð og förgun útfellinga úr borholum á Reykjanesi Hsorka Reykjanes 0497

20.02.2026

Spurt og svarað um meðferð og förgun útfellinga úr borholum á Reykjanesi

Lesa nánar