Chat with us, powered by LiveChat Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

Fjórtán milljónir í styrki úr Rannsóknasjóði HS Orku

Hsorka 24
Styrkþegar úr Rannsóknasjóði ársins 2026 ásamt fulltrúum í úthlutunarnefnd sjóðsins, sem skipuð er sérfræðingum HS Orku.

Alls hlutu fjögur verkefni styrk í annarri úthlutun Rannsóknasjóðs HS Orku sem fram fór í húsakynnum HS Orku í Turninum í Kópavogi í síðustu viku. Styrkupphæðin að þessu sinni er samtals 14 milljónir króna en alls bárust 66 umsóknir í sjóðinn í ár.

Úthlutunarnefnd sjóðsins er skipuð sérfræðingum úr nokkrum teymum innan HS Orku og hana skipa nú: Helga Frímann, verkefnastjóri umhverfismála, Lárus Þorvaldsson, yfirforðafræðingur, Lárus Guðmundsson, sérfræðingur framkvæmda, og Steinar Ísfeld Ómarsson, sem hefur umsjón með viðhaldsstjórn og vöruhúsi.

Sjóðurinn veitir styrki til afmarkaðra rannsóknarverkefna sem hafa skírskotun til starfsemi fyrirtækisins og/eða til sjálfbærniáherslna HS Orku. Markmið sjóðsins er að efla þekkingu innan fyrirtækisins og stuðla að framförum og nýsköpun í starfseminni.

Eftirfarandi fjögur rannsóknarverkefni hlutu styrk úr sjóðnum í ár:

  • CO₂ Atlas bókhald og mat á CO₂ losun jarðhitakerfa í Svartsengi og á Reykjanesi.
    • Andri Stefánsson, Jarðhiti
  • Quantifying the magmatic CO₂ and SO₂ inputs beneath Svartsengi.
    • Simon W. Matthews, Sæmundur Ari Halldórsson, Enikö Bali, Guðmundur Heiðar Guðfinnsson og Alberto Caracciolo, Jarðvísindastofnun Háskólans
  • Real-Time Detection of Geothermal Well Performance Changes Using Machine Learning and Historical Data).
    • María Sigríður Guðjónsdóttir, Agata Rostran Largeaspada, Háskólinn í Reykjavík og Egill Júlíusson, Arctic Green Energy
  • MagmaEst: Improving MAGMA source parameter ESTimates at Svartsengi based on Finite Element Ground deformation models.
    • Sonja Greiner og Halldór Geirsson, Háskóli Íslands

Næsta úthlutun úr Rannsóknasjóðnum fer fram að ári liðnu og verður opið fyrir umsóknir í gegnum umsóknarsíðu HS Orku frá 15. janúar til 15. febrúar 2027.

Hsorka 3
Lárus Þorvaldsson (HS Orka), Andri Stefánsson (Jarðhiti) og Helga Frímann (HS Orka)
Hsorka 5
Simon W. Matthews, Sæmundur Ari Halldórsson, Alberto Caracciolo, Enikö Bali (Jarðvísindastofnun Háskólans)
Hsorka 2
María Sigríður Guðjónsdóttir og Agata Rostran Largeaspada (Háskólinn í Reykjavík
Hsorka 4
Halldór Geirsson (Háskóli Íslands)

Fréttir

Skoða allar fréttir
Annar áfangi rannsóknarborana hafinn á Krýsuvíkursvæðinu Media 4

21.05.2026

Annar áfangi rannsóknarborana hafinn á Krýsuvíkursvæðinu

Lesa nánar
Sjálfbærniskýrsla HS Orku varpar ljósi á áhrif jarðhræringa Dsc0905

13.05.2026

Sjálfbærniskýrsla HS Orku varpar ljósi á áhrif jarðhræringa

Lesa nánar
Fjórtán milljónir í styrki úr Rannsóknasjóði HS Orku Hsorka 24

12.05.2026

Fjórtán milljónir í styrki úr Rannsóknasjóði HS Orku

Lesa nánar
Stjórnvöld og orkufyrirtæki þróa næstu kynslóðar jarðhita Undirritun (1)

11.05.2026

Stjórnvöld og orkufyrirtæki þróa næstu kynslóðar jarðhita

Lesa nánar
Besta rekstrarár HS Orku frá upphafi Hsorka Tomas Bk212636

04.05.2026

Besta rekstrarár HS Orku frá upphafi

Lesa nánar
Nýr formaður KÍO úr röðum HS Orku Elisabetblondal20260319172632

09.04.2026

Nýr formaður KÍO úr röðum HS Orku

Lesa nánar
Heimildarmyndin Í takti við náttúruna B93a8109

26.03.2026

Heimildarmyndin Í takti við náttúruna

Lesa nánar
HS Orka hlýtur Teninginn Vfi 26 03 20 00010 Web Size

20.03.2026

HS Orka hlýtur Teninginn

Lesa nánar
Spurt og svarað um meðferð og förgun útfellinga úr borholum á Reykjanesi Hsorka Reykjanes 0497

20.02.2026

Spurt og svarað um meðferð og förgun útfellinga úr borholum á Reykjanesi

Lesa nánar