Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

Allt eðlilegt í rekstri orkuversins í Svartsengi

Svartsengi Súmm

Eldgos hófst á Sundhnúksgígaröðinni skömmu fyrir klukkan fjögur í nótt. Eldgosið hefur engin áhrif haft á starfsemi orkuversins í Svartsengi og er rekstur eðlilegur. Þetta er níunda eldgosið á gígaröðinni en fyrst gaus þar í desember 2023.

Vaktmenn, sem að jafnaði dvelja í Svartsengi að næturlagi, fluttu sig yfir í Reykjanesvirkjun skömmu eftir miðnætti þegar viðvörunarlúðrar Almannavarna fóru í gang. Þaðan er unnt að fjarstýra orkuverinu í Svartsengi. Um svipað leyti var neyðarstjórn fyrirtækisins virkjuð og fylgist hún grannt með framvindu eldgossins.

Fylgst með loftgæðum

Lögreglan á Suðurnesjum heimilaði starfsfólki og verktökum, sem vinna að stækkun og endurbótum á orkuverinu í Svartsengi, að fara inn á svæðið í upphafi vinnudags og urðu því engar tafir af völdum gossins í morgun. Töluverða gasmengun leggur frá gosstöðvunum en vindáttin veldur því að hún raskar ekki starfsemi í Svartsengi sem stendur. Grannt er fylgst með loftgæðum á svæðinu.

Borholur vara enn og aftur við

Viðvörunarkerfi, sem mælir borholuþrýsting í Svartsengi og Veðurstofan nýtir í mati á yfirvofandi eldgosum, sendi frá sér viðvörun um hálf tvöleytið í nótt - rúmum tveimur klukkutímum áður en eldgos hófst. Kerfið var hannað og þróað af teymi vísindamanna í auðlindastýringu HS Orku í kjölfar fyrsta eldgossins á gígaröðinni og hefur það gefið vísbendingar um yfirvofandi gos í öll skipti sem eldsumbrot hafa orðið frá þeim tíma.

Orkuverið í Svartsengi og varnargarðar í baksýn.
HS Orka

Fréttir

Skoða allar fréttir
Samfélagssjóður HS Orku styrkir 23 samfélagsverkefni HS Orka Event Gardarolafs 56

20.11.2026

Samfélagssjóður HS Orku styrkir 23 samfélagsverkefni

Lesa nánar
Mikill áhugi á jarðvarma á COP31 Processed 460A314e A806 4Bdd 8B7b 1Fd7da0790d7 (1)

20.11.2026

Mikill áhugi á jarðvarma á COP31

Lesa nánar
Vörumerki HS Orku verðlaunað á CHARGE DSC01488 (1)

21.10.2026

Vörumerki HS Orku verðlaunað á CHARGE

Lesa nánar
Nýr raforkusamningur Norðuráls og HS Orku tekur gildi A Century Ice1920x1080 41

01.10.2026

Nýr raforkusamningur Norðuráls og HS Orku tekur gildi

Lesa nánar
HS Orka tekur þátt í rafvæðingu strandveiðiflotans Img 7328

17.09.2026

HS Orka tekur þátt í rafvæðingu strandveiðiflotans

Lesa nánar
Opið fyrir umsóknir í Samfélagssjóð HS Orku Safsadfa

02.09.2026

Opið fyrir umsóknir í Samfélagssjóð HS Orku

Lesa nánar
Mikill viðbúnaður á Reykjanesi vegna almyrkvans Picture5 603876

11.08.2026

Mikill viðbúnaður á Reykjanesi vegna almyrkvans

Lesa nánar
HS Orka kaupir Múlavirkjun Múlavirkjun Á Snæfellsnesi

28.07.2026

HS Orka kaupir Múlavirkjun

Lesa nánar
HS Orka leggur Jarðhitaskólanum lið Jarðhitaskóli Unesco 2026 Lýst (1)

16.07.2026

HS Orka leggur Jarðhitaskólanum lið

Lesa nánar