Eldvörp - HS Orka Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

HS Orka undirbýr nýtingu jarðhita í Eldvörpum í Grindavík. Verkefnið snýr annars vegar að tengingu Eldvarpa við Svartsengisvirkjun og hins vegar að því að bora nýjar háhitaholur til niðurdælingar á hentugu svæði, sem ætlað er að styðja við framtíðarnýtingu jarðhita á bæði Eldvarpar- og Svartsengissvæðinu.

Í nýtingarflokki rammaáætlunar

Eldvörp hafa verið til skoðunar hjá HS Orku í lengri tíma. Á svæðinu er til staðar borhola sem boruð var árið 1983 og hefur hún verið nýtt til mælinga og eftirlits. Einnig er til staðar nýlegur borteigur sem var útbúinn árið 2019.

Eldvörp eru í orkunýtingarflokki rammaáætlunar og þar er gert ráð fyrir allt að 50 MW nýtingu. 
Í umhverfismatsferli, sem nú er í undirbúningi, er fjallað um þann möguleika að auka raforkuframleiðslu í Svartsengi um allt að 25 MW - úr 85 MW í 110 MW.

Aukin eftirspurn samfélagsins

Eftirspurn eftir raforku og heitu vatni á Suðurnesjum hefur aukist hratt og núverandi framleiðslugeta í Svartsengi er að nálgast þolmörk. Með nýtingu jarðhita í Eldvörpum skapast tækifæri til að mæta aukinni eftirspurn samfélagsins með hagkvæmum og umhverfisvænum hætti.

Rannsóknir á svæðinu hafa staðfest tengsl Eldvarpa og Svartsengis. Jarðhitinn í Eldvörpum er orkuríkur og nýlegar blástursprófanir á rannsóknarholu á svæðinu lofa góðu. Verkefnið mun að stórum hluta nýta þá innviði sem þegar eru til staðar í Svartsengi.

Orka úr Eldvörpum unnin í Svartsengisvirkjun

Á grundvelli staðarvalsgreiningar, sem unnin var á fyrri stigum verkefnisins í samstarfi HS Orku, Grindavíkurbæjar og Bláa lónsins, hefur verið ákveðið að tengja nýtingu í Eldvörpum við Svartsengisvirkjun. Sú leið var og er metin bæði hagkvæm og umhverfislega heppileg.

Til að styðja við áframhaldandi vinnslu og framtíðarvinnslu er fyrirhugað að færa núverandi niðurdælingarsvæði Svartsengis á hentugra svæði og bora þar nýjar niðurdælingarholur. Sú lausn bætir rekstrarskilyrði í Svartsengi, eykur öryggi vinnslunnar og skapar svigrúm til frekari þróunar jarðhitanýtingar í Eldvörpum.

Áætlað er að jarðhitavinnsla Eldvarpa og nýtt niðurdælingarsvæði verði komin í rekstur um mitt ár 2029.