Brúarvirkjun - HS Orka Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

  • 9,9

    MW

    Virkjunarleyfi

  • 85

    GWh

    Ársframleiðsla

  • 48,8

    m

    Fallhæð

  • 25

    m3

    Meðalrennsli

  • 8.200

    klst

    Nýtingartími

Hsorka Geysir 0041

Brúarvirkjun var gangsett árið 2020. Uppsett afl virkjunarinnar er 9,9 MW og er hún fyrsta vatnsaflsvirkjunin í eigu og rekstri HS Orku. Virkjunin er rennslisvirkjun í efri hluta Tungufljóts í Biskupstungum í þeim hluta árinnar sem rennur milli jarðanna Haukadals II og Brúar - ofan við þjóðveginn að Gullfossi.

Umfang Brúarvirkjunar er tiltölulega lítið og staðsetning heppileg með tilliti til sjónrænna áhrifa. Aðalstífla virkjunarinnar liggur þvert yfir farveg Tungufljóts rétt ofan við ármót Stóru-Grjótár. Þaðan er áin leidd í um 1700 metra löngum aðrennslisgöngum neðanjarðar að stöðvarhúsi.  

Brúarvirkjun er beintengd við dreifinetið í Bláskógabyggð og nágrenni og hefur virkjunin þannig haft jákvæð áhrif á afhendingaröryggi raforku fyrir byggð á svæðinu. 

Screenshot 2024 08 13 091322