Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

Við erum í jafnvægi

Jafnvaegisvogin 2025 Mynd Silla Páls
Viðurkenningarhafar Jafnvægisvogarinnar við athöfn Jafnvægisvogarinnar í Háskóla Íslands.

HS Orka er eitt 90 íslenskra fyrirtækja sem í gær hlaut viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar fyrir árið 2025. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu og er viðurkenning á því að þátttakendur hafi náð markmiðum um jöfn hlutföll kynjanna í efstu lögum stjórnunar, það er í stjórnum og framkvæmdastjórnum. Hlutfallið er jafnt í stjórn HS Orku og í framkvæmdastjórn sitja þrjár konur og fjórir karlar.

Kristinn Harðarson, framkvæmdastjóri reksturs, veitti viðurkenningunni viðtöku fyrir hönd HS Orku við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands í gær. Auk fyrirtækjanna hlutu 22 opinberir aðilar og 16 sveitarfélög viðurkenningu og eru viðurkenningarhafarnir í ár því 128 talsins.

Bryndís Reynisdóttir, verkefnisstjóri Jafnvægisvogarinnar, segir ánægjulegt að sjá hversu mörg fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög í Jafnvægisvoginni sinna jafnréttismálum af metnaði. „Þrátt fyrir þennan góða árangur er ljóst að enn er langt í land með að ná fullu jafnrétti. Það er mikilvægt að hvert og eitt fyrirtæki, stofnun eða sveitarfélag skoði stöðu sína og krefjist þess að kynjahlutfall í æðstu stjórnunarstöðum sé sem jafnast, því jafnrétti er ekkert annað en ákvörðun“.

Fréttir

Skoða allar fréttir
Úthlutun úr Samfélagssjóði HS Orku 2026 í myndum Hs Orka Event Gardarolafs 41

23.11.2026

Úthlutun úr Samfélagssjóði HS Orku 2026 í myndum

Lesa nánar
Samfélagssjóður HS Orku styrkir 23 samfélagsverkefni HS Orka Event Gardarolafs 56

20.11.2026

Samfélagssjóður HS Orku styrkir 23 samfélagsverkefni

Lesa nánar
Mikill áhugi á jarðvarma á COP31 Processed 460A314e A806 4Bdd 8B7b 1Fd7da0790d7 (1)

20.11.2026

Mikill áhugi á jarðvarma á COP31

Lesa nánar
Vörumerki HS Orku verðlaunað á CHARGE DSC01488 (1)

21.10.2026

Vörumerki HS Orku verðlaunað á CHARGE

Lesa nánar
Nýr raforkusamningur Norðuráls og HS Orku tekur gildi A Century Ice1920x1080 41

01.10.2026

Nýr raforkusamningur Norðuráls og HS Orku tekur gildi

Lesa nánar
HS Orka tekur þátt í rafvæðingu strandveiðiflotans Img 7328

17.09.2026

HS Orka tekur þátt í rafvæðingu strandveiðiflotans

Lesa nánar
Opið fyrir umsóknir í Samfélagssjóð HS Orku Safsadfa

02.09.2026

Opið fyrir umsóknir í Samfélagssjóð HS Orku

Lesa nánar
Mikill viðbúnaður á Reykjanesi vegna almyrkvans Picture5 603876

11.08.2026

Mikill viðbúnaður á Reykjanesi vegna almyrkvans

Lesa nánar
HS Orka kaupir Múlavirkjun Múlavirkjun Á Snæfellsnesi

28.07.2026

HS Orka kaupir Múlavirkjun

Lesa nánar