Úthlutað úr Samfélagssjóði í annað sinn - HS Orka Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

Úthlutað úr Samfélagssjóði í annað sinn

24Dcef965e85b7e1ea7c63ecef0c4d64678cbd73

Úthlutað hefur verið úr Samfélagssjóði HS Orku í síðari úthlutun ársins og fengu ellefu góð verkefni styrk úr sjóðnum í þetta skiptið. Opið var fyrir umsóknir frá 1.-30. september og bárust hartnær fimmtíu umsóknir.

Meðal verkefna sem hljóta styrki eru verkefni Knattspyrnudeildar Keflavíkur sem snýr að virkni og vellíðan fyrir flóttafólk og hælisleitendur, fræðsluverkefnið Fróðleiksfúsi hjá Þekkingarsetri Suðurnesja, áframhaldandi þróun verkefnisins Sagnastund á Garðskaga, verkefnið Forvarnir á opnu húsi hjá Félagi slökkviliðsmanna í Grindavík, og grænfánaverkefnið Bambahús hjá Reykholtsskóla þar sem íslenskt hugvit og hönnun er nýtt við gerð gróðurhúss fyrir kennsluna við skólann. 

Samfélagssjóðurinn styrkir verkefni sem geta haft jákvæð áhrif á íslenskt samfélag, lífsgæði og mannlíf. Styrkir eru veittir til skýrt skilgreindra verkefna eða atburða. Tekið er á móti umsóknum um styrki frá öllum landshlutum en sérstök áhersla er lögð á að styðja verkefni í nágrannabyggðum starfsstöðva fyrirtækisins. Við val á verkefnum er m.a. litið til þeirra heimsmarkmiða um sjálfbæra þróun sem HS Orka hefur valið fyrir starfsemi sína.

Næsta styrkúthlutun úr sjóðnum er í maí 2024 og tekið verður á móti umsóknum í gegnum umsóknarsvæði á vefsíðu HS Orku frá 1.-30. apríl næstkomandi.


Verkefni sem hljóta styrk úr sjóðnum í október 2023:

•    Knattspyrnudeild Keflavíkur – Virkni og vellíðan flóttafólks og hælisleitenda
•    Minningarsjóður Ölla – Styrkveitingar Minningarsjóðs Ölla 2024
•    Þekkingarsetur Suðurnesja – Fróðleiksfúsi á spjaldtölvur
•    Hilmar Bragi Bárðarson – Sagnastund á Garðskaga 2023-2024
•    Reykholtsskóli – Bambahús í Grænfánaverkefni
•    Elsa Pálsdóttir – Afreksíþróttir öldunga
•    Heiðarskóli Reykjanesbæjar – Það er alltaf gaman í stærðfræði
•    Verzlunarfélag Árneshrepps – Hornsteinn samfélags
•    Blái herinn – Hreinsunarverkefni á Reykjanesi
•    PCOS samtök Íslands – Fræðslukvöld PCOS og breytingaskeiðið
•    Félag slökkviliðsmanna í Grindavík – Fjörugur föstudagur, forvarnir á opnu húsi

Fréttir

Skoða allar fréttir
Annar áfangi rannsóknarborana hafinn á Krýsuvíkursvæðinu Media 4

21.05.2026

Annar áfangi rannsóknarborana hafinn á Krýsuvíkursvæðinu

Lesa nánar
Sjálfbærniskýrsla HS Orku varpar ljósi á áhrif jarðhræringa Dsc0905

13.05.2026

Sjálfbærniskýrsla HS Orku varpar ljósi á áhrif jarðhræringa

Lesa nánar
Fjórtán milljónir í styrki úr Rannsóknasjóði HS Orku Hsorka 24

12.05.2026

Fjórtán milljónir í styrki úr Rannsóknasjóði HS Orku

Lesa nánar
Stjórnvöld og orkufyrirtæki þróa næstu kynslóðar jarðhita Undirritun (1)

11.05.2026

Stjórnvöld og orkufyrirtæki þróa næstu kynslóðar jarðhita

Lesa nánar
Besta rekstrarár HS Orku frá upphafi Hsorka Tomas Bk212636

04.05.2026

Besta rekstrarár HS Orku frá upphafi

Lesa nánar
Nýr formaður KÍO úr röðum HS Orku Elisabetblondal20260319172632

09.04.2026

Nýr formaður KÍO úr röðum HS Orku

Lesa nánar
Heimildarmyndin Í takti við náttúruna B93a8109

26.03.2026

Heimildarmyndin Í takti við náttúruna

Lesa nánar
HS Orka hlýtur Teninginn Vfi 26 03 20 00010 Web Size

20.03.2026

HS Orka hlýtur Teninginn

Lesa nánar
Spurt og svarað um meðferð og förgun útfellinga úr borholum á Reykjanesi Hsorka Reykjanes 0497

20.02.2026

Spurt og svarað um meðferð og förgun útfellinga úr borholum á Reykjanesi

Lesa nánar