Chat with us, powered by LiveChat Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

Undirritun viljayfirlýsingar um hagkvæmniathugun á framleiðslu tilbúins áburðar innanlands

A58c5478d1cffd8eadd827f2f8889b1ca2e78b98

HS Orka, Kaupfélag Skagfirðinga og Fóðurblandan hyggjast rannsaka hagkvæmni þess að reisa verksmiðju til framleiðslu á tilbúnum áburði og hafa undirritað viljayfirlýsingu þess efnis.

Samstarfið felur í sér að framleiða “Kjarna” (NH4NO3) með innlendri, grænni orku til þess að uppfylla innanlandsþarfir fyrir tilbúinn áburð í föstu formi fyrir bændur og aðra sem þarfnast hans til ræktunar. Innanlandsmarkaður fyrir tilbúinn áburð er um 45-50 þúsund tonn á ári og árleg innanlandsþörf fyrir aðalfrumefnið, köfnunarefni (N), er 10 þúsund tonn. Því er gert ráð fyrir að framleiða þurfi 30 þúsund tonn af Kjarna til að fá þetta magn af köfnunarefni. Hluti hagkvæmnisathugunarinnar verður sömuleiðis að greina útflutningsmöguleika á Kjarna, framleiddum með grænni orku. Ef hagkvæmnisathugun leiðir í ljós að rekstur áburðarframleiðslu sé líklega arðbær munu aðilar taka næstu skref, en gert er ráð fyrir að hagkvæmniathuguninni verði lokið í september á þessu ári.

Markmið samstarfsins er að taka þátt í innviðauppbyggingu í landinu, auka öryggi íslenskrar matvælaframleiðslu, kanna útflutningsmöguleika á áburði sem framleiddur er með grænni orku og á sama tíma styrkja grunnstarfsemi aðila.

Sigurjón Rúnar Rafnsson, aðstoðarkaupfélagsstjóri KS leggur áherslu á rekstraröryggi íslenskrar matvælaframleiðslu og sjálfbærni hennar í sátt við umhverfi og samfélag: „Ef útkoman úr þessu verkefni verður jákvæð munum við efla þessa þætti. Þá munum við auka íslenska framleiðslu, fæðuöryggi þjóðarinnar, skapa fleiri störf og tryggja áburð til okkar viðskiptavina, bænda og annarra sem framleiddur verður með grænni íslenskri orku á verði sem íslenskur landbúnaður getur lifað við.“

Eyjólfur Sigurðsson, forstjóri Fóðurblöndunnar: „Þetta gefur okkur möguleika á að framleiða áburð með grænni orku og minnka með því kolefnisspor í íslenskum landbúnaði. Við erum háð óviðráðanlegum aðstæðum í löndunum í kringum okkur og þurfum því að auka sjálfstæði okkar í áburðarframleiðslu og nýta íslenska þekkingu til byggja upp íslenska framleiðslu.“

Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku: „Við munum líta sérstaklega til þeirra möguleika sem felast í því að nýta aukaafurðir og verðmætastrauma frá öðrum fyrirtækjum í Auðlindagarði okkar, svo og hvort framleiðslan sjálf gæti nýst öðrum fyrirtækjum á svæðinu.   Þannig myndi verkefnið styðja bæði við innlenda hráefnisnotkun og við hringrásarhagkerfi svæðisins.“

Fréttir

Skoða allar fréttir
Annar áfangi rannsóknarborana hafinn á Krýsuvíkursvæðinu Media 4

21.05.2026

Annar áfangi rannsóknarborana hafinn á Krýsuvíkursvæðinu

Lesa nánar
Sjálfbærniskýrsla HS Orku varpar ljósi á áhrif jarðhræringa Dsc0905

13.05.2026

Sjálfbærniskýrsla HS Orku varpar ljósi á áhrif jarðhræringa

Lesa nánar
Fjórtán milljónir í styrki úr Rannsóknasjóði HS Orku Hsorka 24

12.05.2026

Fjórtán milljónir í styrki úr Rannsóknasjóði HS Orku

Lesa nánar
Stjórnvöld og orkufyrirtæki þróa næstu kynslóðar jarðhita Undirritun (1)

11.05.2026

Stjórnvöld og orkufyrirtæki þróa næstu kynslóðar jarðhita

Lesa nánar
Besta rekstrarár HS Orku frá upphafi Hsorka Tomas Bk212636

04.05.2026

Besta rekstrarár HS Orku frá upphafi

Lesa nánar
Nýr formaður KÍO úr röðum HS Orku Elisabetblondal20260319172632

09.04.2026

Nýr formaður KÍO úr röðum HS Orku

Lesa nánar
Heimildarmyndin Í takti við náttúruna B93a8109

26.03.2026

Heimildarmyndin Í takti við náttúruna

Lesa nánar
HS Orka hlýtur Teninginn Vfi 26 03 20 00010 Web Size

20.03.2026

HS Orka hlýtur Teninginn

Lesa nánar
Spurt og svarað um meðferð og förgun útfellinga úr borholum á Reykjanesi Hsorka Reykjanes 0497

20.02.2026

Spurt og svarað um meðferð og förgun útfellinga úr borholum á Reykjanesi

Lesa nánar