Chat with us, powered by LiveChat Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

Sjötta eldgosið hafið

Eldgos hófst í Sundhnúksgígaröðinni á tíunda tímanum í kvöld , nánar tiltekið kl. 21.26. Neyðarstjórn HS Orku hefur verið virkjuð en allur rekstur orkuversins í Svartsengi er með eðlilegum hætti.

Eldgos 220824

Þetta er níunda eldgosið á Reykjanesskaga á ríflega þremur árum, en sjötta á Sundhnúksgígaröðinni, en fyrst gaus við Fagradalsfjall í mars 2021. Svartsengi er mannlaust.

Virðist nú gjósa á lengri sprungu en í fyrri eldsumbrotum þótt atburðurinn sé í byrjun um margt svipaður síðustu tveimur gosum og hraunrennsli þunnfljótandi. Rekstur orkuversins í Svartsengi er eðlilegur en neyðarstjórn HS Orku stendur vaktina, fylgst er grannt með hraunrennsli og gerðar verða viðeigandi ráðstafanir eftir því sem gosinu vindur fram. Raffæðing vatnsdælustöðva við Lága og Fitja var færð frá Svartsengi til HS Veitna í varúðarskyni fljótlega eftir að eldgosið hófst.