Chat with us, powered by LiveChat Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

Sjálfbærniskýrsla HS Orku 2021

Orkuver Svartsengi Ljósaskipti Hires

HS Orka hefur í fyrsta sinn gefið út sjálfbærnisskýrslu  um frammistöðu fyrirtækisins á sviði umhverfis-, samfélags- og stjórnarhátta fyrir árið 2021 og er hún unnin í samræmi við GRI staðalinn (Global Reporting Initiative). Með útgáfu skýrslunnar er fyrirtækið að styðja við stefnu fyrirtækisins um að starfsemi sé í sátt við umhverfi og samfélag í anda sjálfbærrar þróunar. Skýrslan endurspeglar þekkingu HS Orku á áhrifum fyrirtækisins fyrir árið 2021.

40 framfaraverkefni skilgreind

Í skýrslunni er farið yfir starfsemi ársins 2021 auk þess sem greint er frá því sem betur má fara. Í vinnunni við undirbúning skýrslunnar hafa orðið til um 40 framfaraverkefni. Sum verkefnanna er hægt að ganga í án mikillar fyrirhafnar en önnur eru flókin, kostnaðarsöm og tímafrek og skiptast hugsanlega í mörg minni framfaraverk. HS Orka vill nýta þennan vettvang sem tól til þess að hjálpa fyrirtækinu áleiðis í frekari þróun að samfélagslegri ábyrgð.

Hugmyndafræði um stöðugar framfarir

Með útgáfu skýrslunnar er ekki verið að gefa í skyn að HS Orka hafi fulla þekkingu á samfélagsáhrifum sínum né heldur að samfélagsábyrgð sé að fullu innleidd hjá fyrirtækinu. HS Orka vinnur eftir hugmyndafræði um stöðugar framfarir og er útgáfa skýrslunnar hluti af þeirri þróun. HS Orka telur það mikilvægt að vera opin varðandi rekstur sinn gagnvart hagsmunaaðilum og almenningi og er útgáfa sjálfbærnisskýrslunnar liður í því að miðla megin áherslum HS Orku bæði til innri og ytri hagaaðila.

Hér getur þú nálgast Sjálfbærniskýrslu HS Orku 2021

Fréttir

Skoða allar fréttir
Annar áfangi rannsóknarborana hafinn á Krýsuvíkursvæðinu Media 4

21.05.2026

Annar áfangi rannsóknarborana hafinn á Krýsuvíkursvæðinu

Lesa nánar
Sjálfbærniskýrsla HS Orku varpar ljósi á áhrif jarðhræringa Dsc0905

13.05.2026

Sjálfbærniskýrsla HS Orku varpar ljósi á áhrif jarðhræringa

Lesa nánar
Fjórtán milljónir í styrki úr Rannsóknasjóði HS Orku Hsorka 24

12.05.2026

Fjórtán milljónir í styrki úr Rannsóknasjóði HS Orku

Lesa nánar
Stjórnvöld og orkufyrirtæki þróa næstu kynslóðar jarðhita Undirritun (1)

11.05.2026

Stjórnvöld og orkufyrirtæki þróa næstu kynslóðar jarðhita

Lesa nánar
Besta rekstrarár HS Orku frá upphafi Hsorka Tomas Bk212636

04.05.2026

Besta rekstrarár HS Orku frá upphafi

Lesa nánar
Nýr formaður KÍO úr röðum HS Orku Elisabetblondal20260319172632

09.04.2026

Nýr formaður KÍO úr röðum HS Orku

Lesa nánar
Heimildarmyndin Í takti við náttúruna B93a8109

26.03.2026

Heimildarmyndin Í takti við náttúruna

Lesa nánar
HS Orka hlýtur Teninginn Vfi 26 03 20 00010 Web Size

20.03.2026

HS Orka hlýtur Teninginn

Lesa nánar
Spurt og svarað um meðferð og förgun útfellinga úr borholum á Reykjanesi Hsorka Reykjanes 0497

20.02.2026

Spurt og svarað um meðferð og förgun útfellinga úr borholum á Reykjanesi

Lesa nánar