Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

Rífandi gangur í framkvæmdum í Svartsengi

Hsorka 7
Mannskapurinn sem vinnur að byggingu sjöunda orkuversins í Svartsengi kom saman í morgunkaffi í nýja stöðvarhúsinu.
Aron Ingi Gestsson

Þótt náttúruöflin á Reykjanesi hafi boðið upp á ýmsar áskoranir á árinu sem senn er á enda hafa framkvæmdir við stækkun og endurbætur jarðvarmaversins í Svartsengi gengið vel. Um 90 manns vinna nú dag hvern að framkvæmdinni en fyrsta skóflustungan var tekin fyrir sléttum tveimur árum. Verkið er nánast á áætlun en óhjákvæmilegar tafir vegna jarðhræringa, eldgosa og gasmengunar hafa að stærstum hluta verið unnar til baka þökk sé samhentu átaki og góðri samvinnu allra sem að verkinu koma. Heildarkostnaður við framkvæmdirnar er áætlaður um 12 milljarðar króna og er stefnt að gangsetningu virkjunarinnar síðla árs 2025.

Fjöldi stórra og smárra verktaka

Flestir starfsmannanna eru á vegum aðalverktakanna Ístaks, Rafal og HD en fjöldi annarra verktaka og undirverktaka koma að málum. Verkís hannar virkjunina, Lota fer með forritun á stjórnkerfi og Ellert Skúlason ehf sá um jarðvinnu. Fyrirtækin Dip Work, LBC, Stjörnublikk, Topplagnir, Ari Oddsson ehf og JRS koma einnig að þessari miklu framkvæmd. Sjö starfsmenn HS Orku vinna að staðaldri við utanumhald verksins en Strendingur fer með bygginga- og verkefnisstjórn mannvirkja.

Orkuver í sjö áföngum

Í daglegu tali gengur framkvæmdin undir nafninu Svartsengi 7 (SVA7) sem vísar til þess að hér er um að ræða sjöunda jarðvarmaverið sem reist er í Svartsengi en hið fyrsta var tekið í notkun árið 1976, tveimur árum eftir að Hitaveita Suðurnesja, forveri HS Orku, var stofnuð. Nýja orkuverið leysir af hólmi tvö af eldri orkuverunum auk þess sem framkvæmdin felur í sér umtalsverðar endurbætur á ýmsum búnaði sem lýtur að heitavatnsframleiðslu fyrirtækisins. Stefnt er að því að með stækkuninni aukist raforkuframleiðslugetan í Svartsengi um allt að þriðjung en framleiðslugetan er í dag um 66 MW.

Boðið í aðventukaffi

Í vikunni bauð HS Orka öllum sem koma að verkinu í morgunkaffi í tilefni aðventunnar og smellti ljósmyndarinn Aron Ingi Gestsson meðfylgjandi myndum af hópnum. Það var glatt yfir mannskapnum enda vinnst hratt undan hópnum og farið er að glitta í lokatakmarkið þrátt fyrir allskyns andstreymi af náttúrunnar völdum síðastliðna þrettán mánuði.

Hsorka 22
Frá vinstri: Ásta Ósk Stefánsdóttir, staðarstjóri Ístaks, Sunna Björg Helgadóttir, framkvæmdastjóri tæknisviðs, Rafn Magnús Jónsson, yfirverkefnisstjóri SVA7 og Tómas Már Sigurðsson, forstjóri.
Hsorka 10
Hsorka 38
Hsorka 37

Fréttir

Skoða allar fréttir
Nýr raforkusamningur Norðuráls og HS Orku tekur gildi A Century Ice1920x1080 41

01.10.2026

Nýr raforkusamningur Norðuráls og HS Orku tekur gildi

Lesa nánar
HS Orka tekur þátt í rafvæðingu strandveiðiflotans Img 7328

17.09.2026

HS Orka tekur þátt í rafvæðingu strandveiðiflotans

Lesa nánar
Opið fyrir umsóknir í Samfélagssjóð HS Orku Safsadfa

02.09.2026

Opið fyrir umsóknir í Samfélagssjóð HS Orku

Lesa nánar
Mikill viðbúnaður á Reykjanesi vegna almyrkvans Picture5 603876

11.08.2026

Mikill viðbúnaður á Reykjanesi vegna almyrkvans

Lesa nánar
HS Orka kaupir Múlavirkjun Múlavirkjun Á Snæfellsnesi

28.07.2026

HS Orka kaupir Múlavirkjun

Lesa nánar
HS Orka leggur Jarðhitaskólanum lið Jarðhitaskóli Unesco 2026 Lýst (1)

16.07.2026

HS Orka leggur Jarðhitaskólanum lið

Lesa nánar
HS Orka þátttakandi í rannsóknum sem styrkja viðbúnað Íslands gagnvart náttúruvá Rannís Styrkir Afhentir

01.07.2026

HS Orka þátttakandi í rannsóknum sem styrkja viðbúnað Íslands gagnvart náttúruvá

Lesa nánar
HS Orka á World Geothermal Conference 2026 Untitled Design 16

03.06.2026

HS Orka á World Geothermal Conference 2026

Lesa nánar
Annar áfangi rannsóknarborana hafinn á Krýsuvíkursvæðinu Media 4

21.05.2026

Annar áfangi rannsóknarborana hafinn á Krýsuvíkursvæðinu

Lesa nánar