Chat with us, powered by LiveChat Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

Jón Ásgeirsson tekur við nýrri ráðuneytisskrifstofu orkumála

Hsorka Jon Bk214931
Jón Ásgeirsson

Jón Ásgeirsson, framkvæmdastjóri stefnumótunar og Auðlindagarðs HS Orku, hefur verið skipaður skrifstofustjóri orkumála í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Tók skipunin gildi um áramót. Skrifstofa orkumála er ný af nálinni og hluti af umfangsmiklum skipulagsbreytingum sem gerðar hafa verið innan ráðuneytisins. Alls var skipað í fjórar stöður skrifstofustjóra í ráðuneytinu um áramót eins og fram kemur á vef stjórnarráðs Íslands.

Jón hefur starfað hjá HS Orku í sex ár og á þeim tíma leitt stefnumótun fyrirtækisins og innleitt ýmsar mikilvægar breytingar sem ráðist hefur verið í innan þess. Hann hefur einnig unnið málsvarastarf fyrir fyrirtækið og orkugeirann, jafnt innanlands sem erlendis. Á vettvangi Auðlindagarðsins hefur Jón leitt fjölbreytt þróunarverkefni og samningaviðræður vegna verkefna sem lúta meðal annars að orkuskiptum með nýtingu koltvísýrings frá jarðvarma.

Áður starfaði Jón lengst af hjá Rio Tinto; fyrst í rúm tíu ár í Straumsvík þar sem hann var meðal annars framkvæmdastjóri steypuskála og síðan í önnur tíu ár í París og Montreal. Þar gegndi hann ýmsum stjórnunarstöðum á sviði sölu- og markaðsmála, við innkaupastjórnun og í viðskiptaþróun.

Það verður mikill hvalreki fyrir íslenska stjórnsýslu að fá að njóta krafta og reynslu Jóns. Auk fjölbreyttrar reynslu þekkir hann vel til orkumála og hefur verið fulltrúi HS Orku í ýmsum sameiginlegum verkefnum íslenskra orkufyrirtækja sem m.a. hafa miðað að því að gæta hagsmuna Íslands og opna augu stjórnvalda í Evrópusambandinu fyrir eðli og gagnsemi jarðvarma og mikilvægi hans í orkuskiptum þjóða. Jón átti meðal annars þátt í undirbúningi ráðstefnunnar Our Climate Future sem haldin var í Brussel nýverið.

Það er mikil eftirsjá af Jóni úr okkar röðum en við hjá HS Orku þökkum honum frábært samstarf og viðkynningu á síðustu árum um leið og við óskum honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Fréttir

Skoða allar fréttir
Mikill viðbúnaður á Reykjanesi vegna almyrkvans Picture5 603876

11.08.2026

Mikill viðbúnaður á Reykjanesi vegna almyrkvans

Lesa nánar
HS Orka kaupir Múlavirkjun Múlavirkjun Á Snæfellsnesi

28.07.2026

HS Orka kaupir Múlavirkjun

Lesa nánar
HS Orka leggur Jarðhitaskólanum lið Jarðhitaskóli Unesco 2026 Lýst (1)

16.07.2026

HS Orka leggur Jarðhitaskólanum lið

Lesa nánar
HS Orka þátttakandi í rannsóknum sem styrkja viðbúnað Íslands gagnvart náttúruvá Rannís Styrkir Afhentir

01.07.2026

HS Orka þátttakandi í rannsóknum sem styrkja viðbúnað Íslands gagnvart náttúruvá

Lesa nánar
HS Orka á World Geothermal Conference 2026 Untitled Design 16

03.06.2026

HS Orka á World Geothermal Conference 2026

Lesa nánar
Annar áfangi rannsóknarborana hafinn á Krýsuvíkursvæðinu Media 4

21.05.2026

Annar áfangi rannsóknarborana hafinn á Krýsuvíkursvæðinu

Lesa nánar
Sjálfbærniskýrsla HS Orku varpar ljósi á áhrif jarðhræringa Dsc0905

13.05.2026

Sjálfbærniskýrsla HS Orku varpar ljósi á áhrif jarðhræringa

Lesa nánar
Fjórtán milljónir í styrki úr Rannsóknasjóði HS Orku Hsorka 24

12.05.2026

Fjórtán milljónir í styrki úr Rannsóknasjóði HS Orku

Lesa nánar
Stjórnvöld og orkufyrirtæki þróa næstu kynslóðar jarðhita Undirritun (1)

11.05.2026

Stjórnvöld og orkufyrirtæki þróa næstu kynslóðar jarðhita

Lesa nánar