Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

Hyggjast fjárfesta 15 milljörðum í metanól-framleiðslu á Reykjanesi

DJI 0058

Hydrogen Ventures Limited (H2V), alþjóðlegt orkufyrirtæki, hyggur á umfangsmikla framleiðslu vetnis hér á landi sem verður nýtt við framleiðslu metanóls. Metanól-framleiðslan verður að fullu umhverfisvæn en fyrirhugað er að verksmiðja H2V rísi í Auðlindagarðinum á Reykjanesi, í nágrenni við annað af tveimur raforkuverum HS Orku.

Verkefnið skiptist í tvo áfanga. Í fyrri áfanganum er áætlað að afkastageta verksmiðju H2V nemi 30 megavöttum úr jarðhita við framleiðslu á grænu metanóli. Í öðrum áfanga verði framleiðslugeta fyrirtækisins aukin verulega. Kostnaður við fyrsta áfanga er áætlaður ríflega 100 milljónir evra, sem samsvarar um 15 milljörðum íslenskra króna.

Allt vetnið sem verður til verður vottað „grænt vetni“ sem þýðir að 100% orkunnar sem notuð er til að framleiða það kemur frá endurnýjanlegum orkugjöfum.

Forsvarsmenn H2V segja að metanólið geti orðið hagkvæmur og umhverfisvænn orkugjafi fyrir sjávarútveginn auk innlenda bílaflotans, ekki síst sendi- og vörubifreiða. Verkefnið færi Ísland nær markmiði sínu um að ná kolefnishlutleysi fyrir árið 2040.

Meira en 80% af orkunotkun Íslands byggir nú þegar á endurnýjanlegum orkugjöfum, fyrst og fremst jarðhita og vatnsafli. Markviss uppbygging innviða fyrir framleiðslu græns vetnis og metanóls getur, að mati forsvarsmanna H2V, gert Ísland að leiðandi þjóð á sviði endurnýjanlegrar og hreinnar orku með að skipta út jarðefnaeldsneyti í samgöngum fyrir endurnýjanlega orkugjafa.

Horacio Carvalho, framkvæmdastjóri H2V:

„Ísland hefur sett sér metnaðarfull markmið um að draga úr kolefnislosun sinni og við teljum að nýting vetnis sé þar lykilatriði. Með reynslu sína á sviði endurnýjanlegrar orku getur Ísland verið í fararbroddi og sýnt heiminum hvernig hægt er að ná fullu kolefnishlutleysi. Við erum spennt að vera hluti af þessari nýju byltingu.“

Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku:

„Við erum mjög spennt fyrir þessu samstarfi við H2V. Þeir búa yfir mikilli þekkingu og reynslu sem nýtist vel við uppbyggingu verkefnis af þessari stærðargráðu. Þá er ánægjulegt að þeir horfi til þeirra möguleika sem að Ísland og ekki síst Auðlindagarður HS Orku býður uppá en auk raforku mun HS Orka geta séð þeim fyrir vatni og koldíoxíði sem er nauðsynlegt við framleiðslu metanóls.“

Fréttir

Skoða allar fréttir
Úthlutun úr Samfélagssjóði HS Orku 2026 í myndum Hs Orka Event Gardarolafs 41

23.11.2026

Úthlutun úr Samfélagssjóði HS Orku 2026 í myndum

Lesa nánar
Samfélagssjóður HS Orku styrkir 23 samfélagsverkefni HS Orka Event Gardarolafs 56

20.11.2026

Samfélagssjóður HS Orku styrkir 23 samfélagsverkefni

Lesa nánar
Mikill áhugi á jarðvarma á COP31 Processed 460A314e A806 4Bdd 8B7b 1Fd7da0790d7 (1)

20.11.2026

Mikill áhugi á jarðvarma á COP31

Lesa nánar
Vörumerki HS Orku verðlaunað á CHARGE DSC01488 (1)

21.10.2026

Vörumerki HS Orku verðlaunað á CHARGE

Lesa nánar
Nýr raforkusamningur Norðuráls og HS Orku tekur gildi A Century Ice1920x1080 41

01.10.2026

Nýr raforkusamningur Norðuráls og HS Orku tekur gildi

Lesa nánar
HS Orka tekur þátt í rafvæðingu strandveiðiflotans Img 7328

17.09.2026

HS Orka tekur þátt í rafvæðingu strandveiðiflotans

Lesa nánar
Opið fyrir umsóknir í Samfélagssjóð HS Orku Safsadfa

02.09.2026

Opið fyrir umsóknir í Samfélagssjóð HS Orku

Lesa nánar
Mikill viðbúnaður á Reykjanesi vegna almyrkvans Picture5 603876

11.08.2026

Mikill viðbúnaður á Reykjanesi vegna almyrkvans

Lesa nánar
HS Orka kaupir Múlavirkjun Múlavirkjun Á Snæfellsnesi

28.07.2026

HS Orka kaupir Múlavirkjun

Lesa nánar