Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

Fimmta eldgosinu í Sundhnúksgígum væntanlega lokið

24062024 Gigur Ovirkur
Mynd sem Veðurstofan birti í dag og sýnir að engin virkni virðist lengur vera í gígnum.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Almannavörnum sem send var út síðdegis. Öll starfsemi orkuversins í Svartsengi hefur verið með eðlilegum hætti frá því að eldgosið hófst þann 29. maí síðastliðinn.

Í tilkynningu Almannavarna segir að fyrr í dag hafi sést á drónamyndum að virkni í gígnum er engin. Áfram er þó rennsli í þeim hrauntungum sem fóru yfir varnargarð norðan Sýlingarfells en búast má við að rennslið stöðvist á næstunni. Mest virkni er í hrauntungunni lengst til vesturs sem hefur færst áfram um nokkra metra og þykknað á síðustu klukkustundum. Gosórói hefur einnig farið minnkandi á síðustu sólarhringum.

Vinna við að hemja hraunrennslið hefur nú staðið yfir í nokkra daga, bæði með vinnuvélum og hraunkælingu. Þar sem aðstæður hafa breyst hefur hraunkælingu verið hætt og fara næstu dagar og vikur í að meta hvort og þá mögulega hvernig hún virkaði.

Á mánudagsmorgun hefst vinna á ný við að ljúka því verki sem hafið var, að verja Svartsengi enn frekar með varnargarðavinnu. Það er fyrst og fremst tilgangurinn með vinnunni sem er framundan á næstu dögum og vikum. Búið er að gera minni varnargarð fyrir innan þann sem fyrir var og er hraunið komið að honum en þó ekki honum öllum.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra færir öllum þeim þakkir sem komu að þessari vinnu síðustu daga og nætur.

Áfram verður svæðið vaktað af Veðurstofunni og mun Lögreglan á Suðurnesjum sinna vaktinni á staðnum.

Fréttir

Skoða allar fréttir
Vörumerki HS Orku verðlaunað á CHARGE Uploads 3000215 3003306475 Processed R Fv5a3wdzysvwbgcgau2gsyi0ncotcq7s0n9k4deq

21.10.2026

Vörumerki HS Orku verðlaunað á CHARGE

Lesa nánar
Nýr raforkusamningur Norðuráls og HS Orku tekur gildi A Century Ice1920x1080 41

01.10.2026

Nýr raforkusamningur Norðuráls og HS Orku tekur gildi

Lesa nánar
HS Orka tekur þátt í rafvæðingu strandveiðiflotans Img 7328

17.09.2026

HS Orka tekur þátt í rafvæðingu strandveiðiflotans

Lesa nánar
Opið fyrir umsóknir í Samfélagssjóð HS Orku Safsadfa

02.09.2026

Opið fyrir umsóknir í Samfélagssjóð HS Orku

Lesa nánar
Mikill viðbúnaður á Reykjanesi vegna almyrkvans Picture5 603876

11.08.2026

Mikill viðbúnaður á Reykjanesi vegna almyrkvans

Lesa nánar
HS Orka kaupir Múlavirkjun Múlavirkjun Á Snæfellsnesi

28.07.2026

HS Orka kaupir Múlavirkjun

Lesa nánar
HS Orka leggur Jarðhitaskólanum lið Jarðhitaskóli Unesco 2026 Lýst (1)

16.07.2026

HS Orka leggur Jarðhitaskólanum lið

Lesa nánar
HS Orka þátttakandi í rannsóknum sem styrkja viðbúnað Íslands gagnvart náttúruvá Rannís Styrkir Afhentir

01.07.2026

HS Orka þátttakandi í rannsóknum sem styrkja viðbúnað Íslands gagnvart náttúruvá

Lesa nánar
HS Orka á World Geothermal Conference 2026 Untitled Design 16

03.06.2026

HS Orka á World Geothermal Conference 2026

Lesa nánar