Afkomendur komu færandi hendi - HS Orka Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

Afkomendur komu færandi hendi

INGO1002

Þann 10. október s.l. hefði Ingólfur Aðalsteinsson, veðurfræðingur og fyrsti forstjóri Hitaveitu Suðurnesja orðið 100 ára. Ingólfur var fyrsti starfsmaður Hitaveitu Suðurnesja og gegndi starfi forstjóra árin 1975-1992. Af þessu tilefni komu afkomendur hans færandi hendi í höfuðstöðvar HS Orku á afmælisdaginn með koparlágmynd af Ingólfi eftir Erling Jónsson ásamt litlu líkani af orkuverinu í Svartsengi, sem verið hafði í eigu Ingólfs.

Albert Albertsson,verkfræðingur, hugmyndasmiður og fyrrverandi starfsmaður HS Orku, veitti gjöfunum viðtöku fyrir hönd fyrirtækisins. Það var einmitt Ingólfur sem réði Albert fyrst til starfa hjá Hitaveitu Suðurnesja og voru þeir því samstarfsmenn um tíma.

Ingólfur var fæddur í Miðdölum í Dalasýslu árið 1923 en hann lést í Reykjavík árið 2012. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri og nam veðurfræði í Svíþjóð þaðan sem hann útskrifaðist árið 1949. Hann starfaði á Veðurstofu Íslands í Reykjavík og á Keflavíkurflugvell til ársins 1975 þegar hann var ráðinn til Hitaveitu Suðurnesja sem fyrsti starfsmaður hennar og tók stuttu síðar við forstjórastöðu. Ingólfur var mikill talsmaður þess að heilsulind yrði byggð upp í tengslum við jarðsjóinn frá orkuverinu í Svartsengi sem síðar fékk nafnið Bláa lónið. Í umfjöllun Víkurfrétta í tengslum við 100 ára ártíð Ingólfs má lesa nánar um það hvernig Ingólfur talaði fyrir verkefninu um árabil áður en Bláa lónið var loks stofnað árið 1992, árið sem Ingólfur lét af störfum.

INGO100
Afkomendur Ingólfs og makar ásamt Alberti. F.v.: Janet Ingólfsson, Aðalsteinn, Ólafur Örn, Birgir, Auður Jónsdóttir, Ásrún, Þuríður, Atli, Albert Albertsson, Magnús Snæbjörnsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir.

Fréttir

Skoða allar fréttir
Sjálfbærniskýrsla HS Orku varpar ljósi á áhrif jarðhræringa Dsc0905

13.05.2026

Sjálfbærniskýrsla HS Orku varpar ljósi á áhrif jarðhræringa

Lesa nánar
Fjórtán milljónir í styrki úr Rannsóknasjóði HS Orku Hsorka 24

12.05.2026

Fjórtán milljónir í styrki úr Rannsóknasjóði HS Orku

Lesa nánar
Stjórnvöld og orkufyrirtæki þróa næstu kynslóðar jarðhita Undirritun (1)

11.05.2026

Stjórnvöld og orkufyrirtæki þróa næstu kynslóðar jarðhita

Lesa nánar
Besta rekstrarár HS Orku frá upphafi Hsorka Tomas Bk212636

04.05.2026

Besta rekstrarár HS Orku frá upphafi

Lesa nánar
Nýr formaður KÍO úr röðum HS Orku Elisabetblondal20260319172632

09.04.2026

Nýr formaður KÍO úr röðum HS Orku

Lesa nánar
Heimildarmyndin Í takti við náttúruna B93a8109

26.03.2026

Heimildarmyndin Í takti við náttúruna

Lesa nánar
HS Orka hlýtur Teninginn Vfi 26 03 20 00010 Web Size

20.03.2026

HS Orka hlýtur Teninginn

Lesa nánar
Spurt og svarað um meðferð og förgun útfellinga úr borholum á Reykjanesi Hsorka Reykjanes 0497

20.02.2026

Spurt og svarað um meðferð og förgun útfellinga úr borholum á Reykjanesi

Lesa nánar
Sunna verður forstjóri Rio Tinto á Íslandi Hsorka Sunna Bk213776

28.01.2026

Sunna verður forstjóri Rio Tinto á Íslandi

Lesa nánar