Þar hyggst fyrirtækið nýta einstakar aðstæður, þar á meðal hraunsíaðan ylsjó frá Reykjanesvirkjun, sem gerir mögulegt að rækta hlýsjávartegundir af hæstu gæðum sem annars væri ekki hægt að ala á Íslandi.
Samstarf og sameiginleg sýn
Sæbýli er eitt þeirra fyrirtækja sem verða hluti af ylsjávargarði, einstöku frumkvöðlaverkefni innan Auðlindagarðsins þar sem auðlindir og affallsstraumar eru nýttir með ábyrgum hætti og með sjálfbæra matvælaframleiðslu að leiðarljósi. Innan Auðlindagarðsins á Reykjanesi er Samherji einnig í mikilli uppbyggingu við landeldi laxfiska. Svæðið býr því yfir miklum möguleikum til samvinnu, þekkingaruppbyggingar og þróunar á sérhæfðu landeldi.
Nýjum fyrirtækjum fagnað
Jón Ásgeirsson, framkvæmdastjóri stefnumótunar, framfara og Auðlindagarðsins hjá HS Orku segir það afar ánægjulegt að sjá fyrirtæki á borð við Sæbýli nýta sér tækifæri Auðlindagarðsins til nýsköpunar og sjálfbærrar matvælaframleiðslu: ,,Aðgangur að hreinum ylsjó gerir svæðið einstakt í alþjóðlegu samhengi. Við fögnum því að fleiri fyrirtæki sjái þau fjölmörgu tækifæri sem felast í fjölnýtingu auðlinda á þessu sérstæða svæði. Með sameiginlegri sýn og samstarfi getum við stuðlað að sjálfbærri þróun og aukinni nýsköpun í matvælaframleiðslu. Einnig mun koma Sæbýlis í Auðlindagarðinn styðja við þróun hringrásarhagkerfis í garðinum þar sem affall eins verður hráefni annars.“
Hreinn ylsjór lykill að velgengninni
„Að hafa aðgang að hreinum og stöðugum heitum sjó er algjör lykill að okkar velgengni“ segir Vala Valþórsdóttir, forstjóri Sæbýlis: „Við höfum þegar komið upp tilraunaaðstöðu á svæðinu til að prófa búnað og umhverfi, og undirbúum nú hönnun áframeldisstöðvar sem mun verða sú fyrsta sinnar tegundar á heimsvísu.“
Sæbýli er þar í samstarfi við Stolt Sea Farm sem í þessum mánuði fagnar tíu ára starfsafmæli sínu í Auðlindagarðinum og á sama svæði er einnig áformað að hefja ræktun á styrju hjá Icelandic Sturgeon og mögulega sjávarþörungaræktun.
Framleiðslugeta Sæbýla aukin
Sæbýli rekur nú þegar klakdýraeldi, ungviðaframleiðslu og áframeldi í Grindavík, þar sem fram fer stöðug framleiðsla á ungviðum sem eru ætluð til áframeldis upp í markaðsstærð. Starfsemin í Grindavík hefur verið byggð upp með markvissum hætti og gegnir hún lykilhlutverki í vaxtastefnu fyrirtækisins. Næsta skref er að stækka starfsemina með uppbyggingu nýrrar áframeldisstöðvar í Auðlindagarðinum. Stefnt er að því að framkvæmdir við stöðina hefjist árið 2026 og að starfsemin flytjist þangað að hluta eða öllu leyti árið 2027. Þar er áætlað að auka framleiðslugetu í allt að 1.000 tonn á næstu árum og svigrúm er til staðar fyrir frekari uppbyggingu og vöxt.