Nýr formaður KÍO úr röðum HS Orku - HS Orka Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

Nýr formaður KÍO úr röðum HS Orku

Elisabetblondal20260319173052 (2)
Nýkjörin stjórn á KÍO deginum sem haldinn var á Edition nýverið
Elísabet Blöndal

Valdís Guðmundsdóttir, verkefnastjóri auðlinda hjá HS Orku, var kjörin formaður Kvenna í orkumálum (KÍO) á síðasta aðalfundi félagsins. Valdís tekur við keflinu á spennandi tímum þar sem orkugeirinn gegnir lykilhlutverki.

„Það eru forréttindi að fá að leiða KÍO einmitt núna,“ segir Valdís Guðmundsdóttir, nýkjörinn formaður KÍO. „Það er mikil gerjun í orku- og veitugeiranum og við erum í miðjum orkuskiptum þar sem tækifærin til nýsköpunar og snjallra lausna liggja hvarvetna. Við þurfum bara að koma auga á þau og nýta þau. Viðfangsefnin krefjast þess að við fáum til liðs við okkur lausnamiðað fólk með ólíka sýn og fjölbreyttan bakgrunn“.

Sýnileiki og fræðsla lykillinn að framförum

Valdís leggur áherslu á að hlutverk KÍO sé að vera raunverulegt hreyfiafl í geiranum.

„Með því að gera kvenfyrirmyndir sýnilegri, styrkja tengsl kvenna og bjóða markvissa fræðslu, leggur KÍO sitt af mörkum til að færa okkur í átt að auknu jafnrétti í geiranum. Þannig byggjum við upp fjölbreyttan og kröftugan orkugeira sem er reiðubúinn fyrir verkefni framtíðarinnar.“

Breiður hópur sérfræðinga leiðir starfið

Samhliða formannskjörinu var ný og öflug stjórn kynnt en hún er að þessu sinni skipuð breiðum hópi sérfræðinga úr röðum bakhjarla félagsins. Í nýrri stjórn sitja:

•Hafdís Helga Helgadóttir, upplýsingafulltrúi hjá Samorku.
•Hrefna Björg Gylfadóttir, verkefnastjóri innleiðingar stefnu hjá Veitum.
•Ragnhildur Thorlacius, lögfræðingur hjá Orkuveitunni.
•Rósa Jakobsdóttir, forstöðumaður verkefnastofu hjá Landsvirkjun.
•Sigmundína Sara Þorgrímsdóttir, sérfræðingur í markaðsmálum hjá Orkusölunni.
•Sigurborg Rútsdóttir, verkefnastjóri hjá Rarik.
•Stefanía Sif Stefánsdóttir, sérfræðingur í stjórnun flutningskerfis hjá Landsneti.
•Unnur Ylfa Magnúsdóttir, viðskiptastjóri hjá Landsvirkjun.
•Valgerður B. Eggertsdóttir, leiðtogi hagaðilatengsla og sjálfbærni hjá Orku náttúrunnar.

KÍO í góðum höndum

Fráfarandi formaður, Selma Svavarsdóttir, segist afar ánægð með nýja stjórn félagsins: „Það hefur verið einstaklega gefandi að fá að leiða KÍO og fylgjast með þeim krafti sem býr í félaginu og þeim konum sem taka þátt í starfinu. Ég er líka afar þakklát fráfarandi stjórn, sem hefur með metnaði og ótrúlegri samvinnu lagt mikið af mörkum til að styrkja félagið enn frekar, auka sýnileika þess og sýna enn betur hversu spennandi og fjölbreyttur orkugeirinn er. Áhugi á fjölbreytni og aukinni þátttöku kvenna í orkugeiranum hefur aukist verulega á undanförnum árum, og það skiptir máli. Með Valdísi og nýrri stjórn er ég sannfærð um að KÍO muni halda áfram að hafa áhrif og vera mikilvægur vettvangur fyrir konur í geiranum.“

Hlutverk KÍO er að efla þátt kvenna í orkumálum, styrkja tengsl þeirra og auka áhrif innan orku- og veitugeirans. Félagið er opið öllum þeim sem vilja stuðla að jafnrétti og fjölbreytileika í atvinnugreininni og sýna það í verki.

Valdís Guðmundsdóttir, verkefnastjóri auðlinda hjá HS Orku, er nýr formaður KÍO
Elísabet Blöndal
Hvert sæti var skipað á vel heppnuðum KÍO degi sem haldinn var á Edition
Elísabet Blöndal
Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, var meðal stjórnenda í orkufyrirtækjum sem tóku þátt í pallborðsumræðum á KÍO deginum.
Elísabet Blöndal

Fréttir

Skoða allar fréttir
Nýr formaður KÍO úr röðum HS Orku Elisabetblondal20260319173052 (2)

09.04.2026

Nýr formaður KÍO úr röðum HS Orku

Lesa nánar
Heimildarmyndin Í takti við náttúruna B93a8109

26.03.2026

Heimildarmyndin Í takti við náttúruna

Lesa nánar
HS Orka hlýtur Teninginn Vfi 26 03 20 00010 Web Size

20.03.2026

HS Orka hlýtur Teninginn

Lesa nánar
Spurt og svarað um meðferð og förgun útfellinga úr borholum á Reykjanesi Hsorka Reykjanes 0497

20.02.2026

Spurt og svarað um meðferð og förgun útfellinga úr borholum á Reykjanesi

Lesa nánar
Sunna verður forstjóri Rio Tinto á Íslandi Hsorka Sunna Bk213776

28.01.2026

Sunna verður forstjóri Rio Tinto á Íslandi

Lesa nánar
Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Fsd

27.01.2026

Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku

Lesa nánar
HS Orka hástökkvari í ánægjuvoginni Hs Orka8723

26.01.2026

HS Orka hástökkvari í ánægjuvoginni

Lesa nánar
Eldvörp undirbúin til nýtingar Blástur Borholu Í Eldvoerpum Jan 26 Mynd Kristinn Harðar

23.01.2026

Eldvörp undirbúin til nýtingar

Lesa nánar
Undirbúningur Hvalárvirkjunar hlýtur alþjóðlega gullvottun Dji 0031

19.01.2026

Undirbúningur Hvalárvirkjunar hlýtur alþjóðlega gullvottun

Lesa nánar