HS Orka í viðbragðsstöðu - HS Orka Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

HS Orka í viðbragðsstöðu

GFR 0111

Neyðarstjórn HS Orku yfirfer nú sviðsmyndir og viðbragðsáætlanir vegna jarðhræringa í Svartsengi og nágrenni og er í reglulegum samskiptum við Veðurstofuna og stjórnstöð almannavarna vegna þessa. Nokkuð hefur hægt á landrisi síðustu daga, samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar, en enn er beðið gagna úr Sentinel gervitungli til að fá skýrari mynd af stöðu mála á Reykjanesi. Samfelldar GPS mælingar sýna áframhaldandi merki um landris á svæðinu norðvestan við fjallið Þorbjörn og fyrstu líkanreikningar benda til að kvika sé að safnast fyrir á um fjögurra kílómetra dýpi.

Engar breytingar virðast hafa orðið á borholum hjá HS Orku en fylgst er vandlega með gangi máli í góðu samráði við Veðurstofuna og stjórnstöð almannavarna. Hafa ber hugfast að aðstæður geta þó breyst hratt og er fyrirtækið því við öllu búið. Vísindamenn Veðurstofunnar fara á svæðið nærri Svartsengi og Þorbirni í dag til að framkvæma gasmælingar.

Benda má á vef Veðurstofunnar þar sem ávallt má nálgast nýjustu upplýsingar um stöðu mála.

Fréttir

Skoða allar fréttir
Heimildarmyndin Í takti við náttúruna B93a8109

26.03.2026

Heimildarmyndin Í takti við náttúruna

Lesa nánar
HS Orka hlýtur Teninginn Vfi 26 03 20 00010 Web Size

20.03.2026

HS Orka hlýtur Teninginn

Lesa nánar
Spurt og svarað um meðferð og förgun útfellinga úr borholum á Reykjanesi Hsorka Reykjanes 0497

20.02.2026

Spurt og svarað um meðferð og förgun útfellinga úr borholum á Reykjanesi

Lesa nánar
Sunna verður forstjóri Rio Tinto á Íslandi Hsorka Sunna Bk213776

28.01.2026

Sunna verður forstjóri Rio Tinto á Íslandi

Lesa nánar
Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Fsd

27.01.2026

Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku

Lesa nánar
HS Orka hástökkvari í ánægjuvoginni Hs Orka8723

26.01.2026

HS Orka hástökkvari í ánægjuvoginni

Lesa nánar
Eldvörp undirbúin til nýtingar Blástur Borholu Í Eldvoerpum Jan 26 Mynd Kristinn Harðar

23.01.2026

Eldvörp undirbúin til nýtingar

Lesa nánar
Undirbúningur Hvalárvirkjunar hlýtur alþjóðlega gullvottun Dji 0031

19.01.2026

Undirbúningur Hvalárvirkjunar hlýtur alþjóðlega gullvottun

Lesa nánar
Opið fyrir umsóknir í Rannsóknasjóðinn With Person Dsc0594

15.01.2026

Opið fyrir umsóknir í Rannsóknasjóðinn

Lesa nánar