HS Orka í samstarf við Grænafl - HS Orka Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

HS Orka í samstarf við Grænafl

Graenafl
Myndatexti: Kolbeinn Óttarsson Proppé, framkvæmdastjóri Grænafls, og Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs HS Orku, með fulltrúum frá Korean Maritime Institute á fundi í Hörpu.

HS Orka og fyrirtækið Grænafl á Siglufirði hafa skrifað undir samstarfssamning um uppsetningu hleðslustöðva fyrir minni fiskiskip og vinnu að orkuskiptum. Grænafl vinnur að orkuskiptum í minni fiskiskipum og hluti af því verkefni er að koma upp hleðslustöðvum fyrir dagróðrabáta í höfnum landsins. HS Orka og Grænafl munu vinna saman að því og fyrsta hleðslustöðin verður sett upp í höfninni á Siglufirði. Styrkur fékkst frá Orkusjóði í það verkefni.

HS Orka hefur tekið virkan þátt í orkuskiptum með uppsetningu hraðhleðslustöðva fyrir rafbíla um allt land í samstarfi við InstaVolt auk þess að bjóða fyrirtækjum og einstaklingum lausnir fyrir hleðslu rafbíla heima fyrir á mjög hagstæðu verði.

„Við hjá HS Orku leggjum mikið upp úr sjálfbærni, t.d. með rekstri Auðlindagarðsins, og tökum það verkefni að Ísland nái kolefnishlutleysi alvarlega. Við höfum fylgst með verkefnum Grænafls og sjáum spennandi tækifæri í orkuskiptum í sjávarútvegi, þar sem við getum útvíkkað starfsemi okkar þegar kemur að hleðslustöðvum. HS Orka telur mikilvægt að styðja við nýsköpun í þessum geira og skapa um leið nýjan markað,“ segir Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs HS Orku.

Grænafl leiðir verkefni um orkuskipti í minni fiskiskipum í samstarfi við suðurkóresk fyrirtæki og stofnanir. Framundan er að breyta fyrstu bátunum og setja í þá nýjan búnað svo þeir geti keyrt á rafmagni, ýmist að fullu eða hluta. Þannig verður til ný tækni og ný lausn fyrir minni skip sem munu draga úr olíunotkun landsins og vera þannig liður í vegferðinni að kolefnishlutleysi.

„Við í Grænafli erum afskaplega ánægð með að HS Orka skuli koma með okkur í þetta mikilvæga verkefni. Það er ljóst að orkuskipti eru á fleygiferð og það þarf að huga að uppbyggingu innviða í höfnum landsins. Að fá traust og reynslumikið fyrirtæki eins og HS Orku með okkur í það verkefni er mikils virði og gefur okkur færi á að stuðla að orkuskiptum minni fiskiskipa,“ segir Kolbeinn Óttarsson Proppé, framkvæmdastjóri Grænafls.

Fréttir

Skoða allar fréttir
Sunna verður forstjóri Rio Tinto á Íslandi Hsorka Sunna Bk213776

28.01.2026

Sunna verður forstjóri Rio Tinto á Íslandi

Lesa nánar
Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Fsd

27.01.2026

Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku

Lesa nánar
HS Orka hástökkvari í ánægjuvoginni Hs Orka8723

26.01.2026

HS Orka hástökkvari í ánægjuvoginni

Lesa nánar
Eldvörp undirbúin til nýtingar Blástur Borholu Í Eldvoerpum Jan 26 Mynd Kristinn Harðar

23.01.2026

Eldvörp undirbúin til nýtingar

Lesa nánar
Undirbúningur Hvalárvirkjunar hlýtur alþjóðlega gullvottun Dji 0031

19.01.2026

Undirbúningur Hvalárvirkjunar hlýtur alþjóðlega gullvottun

Lesa nánar
Opið fyrir umsóknir í Rannsóknasjóðinn With Person Dsc0594

15.01.2026

Opið fyrir umsóknir í Rannsóknasjóðinn

Lesa nánar
Jón Ásgeirsson tekur við nýrri ráðuneytisskrifstofu orkumála Hsorka Jon Bk214931

06.01.2026

Jón Ásgeirsson tekur við nýrri ráðuneytisskrifstofu orkumála

Lesa nánar
Áramótakveðja Proof Point Post 01 (1)

31.12.2025

Áramótakveðja

Lesa nánar
Samfélagssjóður HS Orku styður verkefni víða um land Fjoelskylda Aðalsteins Eirikssonar

17.12.2025

Samfélagssjóður HS Orku styður verkefni víða um land

Lesa nánar