HS Orka hlýtur Teninginn - HS Orka Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

HS Orka hlýtur Teninginn

Vfi 26 03 20 00010 Web Size
Fulltrúar HS Orku og verktaka við afhendingu Teningsins á Degi verkfræðinnar á Hilton Reykjavík Nordica.

Stækkað og endurbætt orkuver HS Orku í Svartsengi hlaut í dag Teninginn, viðurkenningu Verkfræðingafélags Íslands fyrir framúrskarandi verkefni eða framkvæmd. Viðurkenningin var afhent við hátíðlega athöfn á Degi verkfræðinnar á Hilton Reykjavík Nordica.

Allar áætlanir stóðust

Framkvæmdir við orkuverið voru hafnar áður en jarðhræringar hófust á Reykjanesskaga og fóru þær því að stórum hluta fram á tímum mikilla umbrota og endurtekinna eldgosa á svæðinu. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður, tímabundnar lokanir vinnusvæðis og áskoranir vegna gasmengunar tókst að ljúka verkefninu samkvæmt upphaflegri tímaáætlun og undir kostnaðaráætlun með samhentu átaki þeirra fjölmörgu aðila sem komu að verkinu.

Framkvæmdin fól í sér uppsetningu nýrrar 55 MW vélasamstæðu sem jafnframt er stærsti gufuhverfill landsins. Með verkefninu voru tvö eldri orkuver í Svartsengi leyst af hólmi og um leið ráðist í umfangsmiklar endurbætur á búnaði sem tengist bæði raforkuframleiðslu og heitavatnsframleiðslu.

Liður í sjálfbærni og orkuöryggi samfélagsins

„Í uppbyggingu sjöunda orkuversins í Svartsengi kemur saman verkfræðileg þekking, tæknileg nýsköpun og reynsla í nýtingu jarðvarma sem hefur styrkt mikilvæga orkuinnviði á Reykjanesi við krefjandi aðstæður náttúrunnar,“ segir meðal annars í umsögn dómnefndar.

„Verkefnið er því mikilvægt framlag til sjálfbærrar nýtingar jarðvarma og aukins orkuöryggis á Íslandi. Virkjunin gegnir jafnframt lykilhlutverki í orku- og hitaveituinnviðum á Reykjanesi og hefur þar með mikla þýðingu fyrir samfélag og atvinnulíf á svæðinu.“

Samvinna, reynsla og útsjónarsemi fjölmargra

Að verkefninu komu ráðgjafar, verktakar og sérfræðingar úr ólíkum greinum verkfræði. „Verkefnið sýnir vel hvernig verkfræðiþekking, skipulag og samvinna geta tryggt áframhaldandi uppbyggingu mikilvægra innviða jafnvel á tímum náttúruhamfara. Samvinna þeirra, ásamt reynslu og útsjónarsemi við úrlausn verkefna við krefjandi aðstæður, var lykilatriði í farsælli framkvæmd,“ segir jafnframt í umsögn dómnefndar.

Fréttir

Skoða allar fréttir
HS Orka hlýtur Teninginn Vfi 26 03 20 00010 Web Size

20.03.2026

HS Orka hlýtur Teninginn

Lesa nánar
Spurt og svarað um meðferð og förgun útfellinga úr borholum á Reykjanesi Hsorka Reykjanes 0497

20.02.2026

Spurt og svarað um meðferð og förgun útfellinga úr borholum á Reykjanesi

Lesa nánar
Sunna verður forstjóri Rio Tinto á Íslandi Hsorka Sunna Bk213776

28.01.2026

Sunna verður forstjóri Rio Tinto á Íslandi

Lesa nánar
Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Fsd

27.01.2026

Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku

Lesa nánar
HS Orka hástökkvari í ánægjuvoginni Hs Orka8723

26.01.2026

HS Orka hástökkvari í ánægjuvoginni

Lesa nánar
Eldvörp undirbúin til nýtingar Blástur Borholu Í Eldvoerpum Jan 26 Mynd Kristinn Harðar

23.01.2026

Eldvörp undirbúin til nýtingar

Lesa nánar
Undirbúningur Hvalárvirkjunar hlýtur alþjóðlega gullvottun Dji 0031

19.01.2026

Undirbúningur Hvalárvirkjunar hlýtur alþjóðlega gullvottun

Lesa nánar
Opið fyrir umsóknir í Rannsóknasjóðinn With Person Dsc0594

15.01.2026

Opið fyrir umsóknir í Rannsóknasjóðinn

Lesa nánar
Jón Ásgeirsson tekur við nýrri ráðuneytisskrifstofu orkumála Hsorka Jon Bk214931

06.01.2026

Jón Ásgeirsson tekur við nýrri ráðuneytisskrifstofu orkumála

Lesa nánar