Næsta styrkveiting og umsóknarfrestur
Samfélagssjóður HS Orku hefur það að markmiði að styðja við samfélagslega jákvæð verkefni einstaklinga eða hópa. Næsta úthlutun fer fram haustið 2026 og gert er ráð fyrir að opnað verði fyrir umsóknir í ágúst/september. Nánari upplýsingar um umsóknarferlið verða birtar síðar.
Hvernig verkefni styður sjóðurinn?
Verkefni sem hafa jákvæð áhrif á íslenskt samfélag, lífsgæði og mannlíf. Tekið er á móti umsóknum um styrki frá öllum landshlutum en sérstök áhersla er lögð á að styðja verkefni í nágrannabyggðum starfsstöðva fyrirtækisins. Við val á verkefnum er m.a. litið til þeirra heimsmarkmiða um sjálfbæra þróun sem HS Orka hefur innleitt:

Umsóknir skal senda rafrænt gegnum umsóknarsíðu sjóðsins á heimasíðu. Samfélagsráð HS Orku fer yfir umsóknir og tilkynnir styrkveitingar. Fyrirspurnir sem varða umsóknir má senda á styrkir@hsorka.is.
Úthlutunarviðmið Samfélagssjóðs HS Orku
Sjóðurinn veitir styrki til skýrt skilgreindra verkefna og atburða. Styrkir eru veittir einstaklingum, hópum, sjálfseignarstofnunum og félagssamtökum sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni.
Verkefni sem eru langt komin eða þeim lokið eru ekki tekin til greina. Mikilvægt er að umsóknum fylgi lýsing á því hvar verkefni er statt með tilliti til undirbúnings og framkvæmdar ásamt lýsingu á því verkefni eða verkefnum sem gert er ráð fyrir að styrkurinn nýtist til.
Að jafnaði eru styrkir á bilinu 100 til 500 þúsund krónur en hærri styrkir geta komið til álita. Gert er ráð fyrir að styrkir séu nýttir að fullu innan 12 mánaða frá styrkveitingu.
Verkefni sem koma helst til greina:
- Verkefni sem tengjast samfélags- og umhverfismálum, sjálfbærni og orkuskiptum.
- Verkefni tengd lýðheilsu, menntun, fræðslu og forvörnum, æskulýðsstarfi, menningu og listum.
- Verkefni sem skírskota til þeirra heimsmarkmiða um sjálfbæra þróun sem HS Orka hefur innleitt.
Verkefni sem koma almennt ekki til greina:
- Sjóðurinn veitir ekki rekstrarstyrki eða styrki vegna markaðsstarfs.
- Sjóðurinn veitir almennt ekki náms- eða ferðastyrki. Ferðakostnaður getur þó eftir atvikum verið hluti af framkvæmd verkefna sem sjóðurinn styður.
- Sjóðurinn veitir ekki styrki vegna rannsóknar- eða þróunarverkefna á vegum háskóla, stofnana, fyrirtækja eða einstaklinga.