Rannsóknasjóður HS Orku - HS Orka Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

Rannsóknasjóður HS Orku

5O5A4409

Rannsóknasjóður HS Orku veitir styrki til afmarkaðra rannsóknarverkefna sem hafa skírskotun til starfsemi fyrirtækisins og/eða til sjálfbærniáherslna HS Orku. Markmið sjóðsins er að efla þekkingu innan fyrirtækisins og stuðla að framförum og nýsköpun í starfseminni. 

Næsta úthlutun fer fram vorið 2026. Opið er fyrir umsóknir frá 15. janúar til 15. febrúar 2026. 

Úthlutunarviðmið

Þau verkefni sem Rannsóknasjóðurinn styður geta verið á efri stigum háskólanáms, þ.e. meistara- eða doktorsstigi, samstarfsverkefni við þekkingarstofnanir (s.s. háskóla, háskólasetur, náttúrufræðistofur og aðrar stofnanir) eða aðra aðila; einstaklinga, hópa, smærri fyrirtæki, sjálfseignarstofnanir eða félagasamtök. Verkefni geta ýmist verið að frumkvæði HS Orku eða utanaðkomandi aðila.

Fagráð Rannsóknasjóðsins metur umsóknir jafnt frá innlendum sem erlendum aðilum. Verkefnin geta snúið sérstaklega að íslenskum málefnum og aðstæðum, haft tengingu við staðbundna starfsemi HS Orku eða haft þekkingarfræðilegt gildi óháð landssvæði. Við val á verkefnum er einnig litið til þeirra heimsmarkmiða sem HS Orka hefur valið sér.

Viðfangsefni sem koma til greina geta t.d. tengst jarðvísindum, verkfræði, tæknifræði, vélfræði, rafiðnum, málmiðnum, endurnýjanlegri orkuframleiðslu, náttúrufræðum og líffræðilegri fjölbreytni, sjálfbærni og umhverfismálum (t.a.m. loftslagsmálum), jafnrétti og samfélagsmálum, kortagerð og kortlagningu. Listinn er ekki tæmandi.

Styrkumsóknir sem koma almennt ekki til greina:

  • Sjóðurinn veitir ekki styrki vegna markaðsstarfs
  • Sjóðurinn veitir almennt ekki styrki fyrir námsgjöldum, rekstri eða ferðum. Rekstrar- eða ferðakostnaður getur þó eftir atvikum verið hluti af framkvæmd verkefna sem sjóðurinn styður.
  • Sjóðurinn veitir ekki styrki til verkefna sem falla betur að úthlutunarviðmiðum Samfélagssjóðs HS Orku, sjá hér.

Almennar fyrirspurnir berist rafrænt til rannsoknarsjodur(hja)hsorka.is.

Trúnaður 

Fagráð og aðrir þeir sem koma að úrvinnslu umsókna skulu gæta fyllsta trúnaðar um þær upplýsingar sem fram koma í umsóknum. HS Orku hf. er heimilt að greina opinberlega frá nafni styrkþega og heiti rannsóknarverkefnis.

Framkvæmd styrkveitinga

HS Orku hf. er heimilt að binda styrkveitingar skilyrðum og skal gera samning við styrkþega sem eftir atvikum kveður á um fyrirkomulag greiðslu styrks, skuldbindingar styrkþega, skil á skýrslum og eftirfylgni, t.a.m. gerð framvindu-, áfanga- og/ eða lokaskýrslna.