Yngvi Guðmundsson - HS Orka Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

Hsorka Yngvi BK213194

Yngvi Guðmundsson er með M.Sc. gráðu í vélaverkfræði frá Stellenbosch háskólanum í Suður-Afríku og B.Sc. frá vélaverkfræðideild frá Háskóla Íslands. Yngvi tekur við stöðu framkvæmdastjóra þróunar og framkvæmda HS Orku 1. mars 2026 en hann réðst til starfa sem yfirverkfræðingur hjá fyrirtækinu árið 2017.

Sem framkvæmdastjóri mun hann bera ábyrgð á þróunar-og fjárfestingaverkefnum fyrirtækisins, þar með talið nýframkvæmdum. Áður en Yngvi gekk til liðs við HS Orku var hann verkefnastjóri jarðhitaverkefna hjá Verkís á árunum 2012-2017 og þar á undan verkefnastjóri hjá ÍAV við byggingu Hörpunnar árin 2007-2010. Yngvi er stundakennari við jarðhitaskóla GRÓ (jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna) auk þess sem hann sinnti stundakennslu við Háskóla Íslands um fjögurra ára skeið.