Hagstæð leið til að hlaða rafbílinn
Má bjóða þér að leigja hleðslustöð fyrir heimilið? Við erum með fjölbreyttar lausnir fyrir rafbílaeigendur.
Sérbýli
Með hleðsluáskrift getur þú fengið hleðslustöð í leigu frá 2.490 kr. á mánuði. Viðskiptavinir hafa samband við rafvirkja fyrir uppsetningu á hleðslustöð.
Þetta er hagkvæmur kostur fyrir heimilið - Við sjáum um allt viðhald á hleðslustöðinni og aðeins er einn mánaðar uppsagnarfrestur.
Fjölbýli
Með hleðsluáskrift fyrir fjölbýli getur þú fengið hleðslustöð í leigu frá 2.490 kr. á mánuði. Rafvirki þarf að meta aðstæður og sjá um uppsetningu.
Hægt er að velja um sjálfvirka greiðslumiðlun frá HS Orku eða tengjast eigin greiðslukerfum, til dæmis í gegnum húsfélagsþjónustu.
Fyrirtæki
Hleðsluáskrift gerir fyrirtækjum kleift að bjóða starfsfólki og viðskiptavinum upp á hleðslu fyrir rafbílinn án þess að binda fé í hleðslustöðvum.
Hægt er að velja um sjálfvirka greiðslumiðlun frá HS Orku eða tengjast eigin greiðslukerfum. Þetta er þægilegur og hagkvæmur kostur fyrir fyrirtæki sem vilja örugga og einfaldlega rekstrarhæfa hleðslulausn.
Ódýrara rafmagn á nóttunni
Við bjóðum uppá lægra raforkuverð frá kl. 01:00 til 06:00 á nóttunni. Skráðu þig núna og byrjaðu að hlaða ódýrara á nóttunni.
Verðskrá fyrir hleðsluáskrift
Viðskiptavinir í Hleðsluáskrift fá sérkjör á raforkuverði HS Orku. Til viðbótar mánaðarlegri áskrift greiða viðskiptavinir fyrir raforkunotkun heimilisins.
22 kW AC Compact
2.490 kr.
22 kW AC Wallbox
4.490 kr.
Getum við aðstoðað?
Hafðu samband við ráðgjafa HS Orku og við finnum lausnir sem henta þér.