HSS sjálfbærnimat á undirbúningsstigi Hvalárvirkjunar í opnu umsagnarferli - HS Orka Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

HSS sjálfbærnimat á undirbúningsstigi Hvalárvirkjunar í opnu umsagnarferli

Í dag hófst opið umsagnarferli á niðurstöðum HSS sjálfbærnimats, sem framkvæmt hefur verið á undirbúningsstigi Hvalárvirkjunar.

Mynd 1600X1200

Virkjun Hvalár í Ófeigsfirði í Árneshreppi, sem er í nýtingarflokki rammaáætlunar, hefur verið í undirbúningi af hálfu orkufyrirtækisins VesturVerks um langt árabil. VesturVerk er dótturfyrirtæki HS Orku. Niðurstöður matsskýrslunnar eru nú aðgengilegar á vef VesturVerks og stendur umsagnartíminn yfir í 60 daga eða frá 18. ágúst til 17. október.

Haustið 2024 framkvæmdu matsmenn á vegum HSA (Hydropower Sustainability Alliance) samtakanna um sjálfbæra vatnsorku úttekt á undirbúningsstigi Hvalárvirkjunar. Matið er gert í samræmi við alþjóðlega HSS staðalinn (Hydropower Sustainability Standard) og fól í sér umfangsmikla gagnaöflun, viðtöl við ólíka hagaðila og vettvangsferð á fyrirhugað virkjunarsvæði.

Hagaðilar og almenningur geta kynnt sér niðurstöður matsins og sent inn athugasemdir. Í kjölfar umsagnarferlis fara matsmenn yfir innsendar athugasemdir og gefa út lokaútgáfu matsskýrslunnar.

Hér fyrir neðan má nálgast hlekki í upplýsingasíðurnar á vefsíðunni og þar er meðal annars að finna hlekk í umsagnakerfi HSA samtakanna.

Íslenska: HSS sjálfbærnimat

Enska: Hydropower Sustainability Standard Assessment

Hér fyrir neðan fylgir skýringarmynd af niðurstöðum matsskýrslunnar. Samkvæmt matinu uppfyllir undirbúningsstig verkefnisins allar lágmarkskröfur HSS staðalsins. Að óbreyttu gefa niðurstöður sem taka mið af ítarlegri kröfum staðalsins til kynna að verkefnið nái gull-viðmiðum staðalsins og sé vottunarhæft sem slíkt.

Hvala Results(ICE) (002) (002)