Chat with us, powered by LiveChat Fara á efnissvæði

Hvernig getum við aðstoðað?

Þjónustuver HS Orku er opið alla virka daga frá 8:30-15:30

Rannsóknir í Krýsuvík

Borteigur 10

HS Orka hefur hafið borun á fyrstu djúpu rannsóknarborholunni við Sveifluháls í Krýsuvík og fleiri borholur til rannsókna eru í undirbúningi í grenndinni. Borunin við Sveifluháls hófst í apríl 2025. Stefnt er að því að bora niður á 2,500 metra dýpi með stefnuborun og er áætlað að lengd holunnar verði 2,750 metrar. Markmið rannsóknanna er að kanna hvort finna megi svæði með nægjanlegum hita og lekt - það er hvort heitt vatn geti flætt auðveldlega um jarðlögin. Ef sú verður niðurstaðan er þess vænst að svæðið nýtist vel til heitavatns- og raforkuframleiðslu.

Þjóðhagslega mikilvægt svæði

Krýsuvíkursvæðið er talið eitt af mikilvægustu jarðhitasvæðum landsins þegar kemur að því að tryggja afhendingaröryggi á heitu vatni fyrir Hafnarfjörð og höfuðborgarsvæðið, og mögulega einnig fyrir landsvæðið utar á Reykjanesskaga. Einnig gæti svæðið gegnt lykilhlutverki í að mæta vaxandi raforkuþörf landsins.
Á þessari stundu liggja ekki fyrir nægar upplýsingar til að meta nýtingarmöguleika svæðisins að fullu. Rannsóknarboranirnar eru því fyrst og fremst liður í því að kanna fýsileika svæðisins og dýpka þekkingu á jarðfræðilegum aðstæðum þar.

Löng saga rannsókna

Jarðhitarannsóknir á Krýsuvíkursvæðinu eiga sér langa sögu og má rekja fyrstu skráðu könnunina allt aftur til ársins 1756 þegar gerðar voru rannsóknir á hverum og leirpottum í Krýsuvík, sem teljast meðal fyrstu vísindalegu jarðfræðirannsókna á Íslandi.

Í gegnum árin hafa síðan farið fram margvíslegar rannsóknir og boranir á svæðinu. Á árunum 1941–1951 voru boraðar fjölmargar grunnar holur í nágrenni Krýsuvíkur með það að markmiði að afla gufu til rafmagnsframleiðslu fyrir Hafnarfjörð og höfuðborgarsvæðið. Borholurnar leiddu í ljós jarðhita en ekki í nægjanlegu miklu magni til að hefja raforkuframleiðslu á þeim tíma. Holurnar þóttu samt gagnlegar sem undanfari frekari rannsókna síðar meir.

Aukinn kraftur í rannsóknir með djúpborunum

Orkustofnun hóf kerfisbundnar rannsóknir á svæðinu  árið 1970 og í kjölfarið voru boraðar nokkrar djúpar rannsóknarholur. Á síðari árum hefur umfang rannsókna aukist verulega, sérstaklega frá aldamótunum 2000. Þá hófust boranir í Trölladyngju á vegum Hitaveitu Suðurnesja sem síðar var skipt upp í tvö fyrirtæki, HS Orku og HS Veitur. Í þessum borunum mældist mjög hár jarðhiti eða yfir 350°C í dýpstu holum (TR-1 og TR-2). Auk þess hafa verið gerðar víðtækar viðnámsmælingar með TEM og MT aðferðum, kortlagning á jarðhitaeinkennum og rannsóknir á gastegundum og jarðefnafræði svæðisins.

Besta mögulega tækni nýtt við rannsóknir

Frá árinu 2020 hefur HS Orka unnið markvisst að undirbúningi frekari rannsóknarborana í Krýsuvík. Í því skyni hefur teymi vísindamanna í auðlindastýringu HS Orku sett upp þrívítt jarðfræðilíkan sem byggir á öllum helstu fyrirliggjandi rannsóknum og gögnum. Þetta líkan veitir dýpri skilning en áður á jarðfræðilegri uppbyggingu svæðisins og styður við ákvarðanir um boranir sem og mögulega framtíðarnýtingu jarðhitaauðlindarinnar.

Miklu kostað til án fullvissu um árangur

Borun fyrstu djúpu rannsóknarholunnar á áður ókönnuðu jarðhitasvæði felur í sér verulega fjárhagslega áhættu fyrir viðkomandi fyrirtæki. Kostnaður við borun getur numið allt að einum milljarði króna, án nokkurrar tryggingar fyrir því að borunin skili árangi. Þrátt fyrir að bestu mögulegu vísindaaðferðum sé beitt við mat á svæðinu er alls óvíst að boranirnar skili tilætluðum árangri.

Fleiri rannsóknarholur eru fyrirhugaðar í Krýsuvík í yfirstandandi rannsóknaráfanga en fjöldi þeirra og staðsetningar mun helgast að nokkru leyti af þeim niðurstöðum sem fást úr fyrstu rannsóknarboruninni við Sveifluháls.

Frekari upplýsingar um eldri rannsóknir á svæðinu má nálgast hér á vef ÍSOR.