Hugmyndir um jarðhitanýtingu í Krýsuvík eiga sér langa sögu. Hafnarfjörður, sem landeigandi við Sveifluháls og Austurengjar, hefur gefið svæðinu gaum í áratugi og hefur samið við HS Orku um rannsóknir og nýtingu auðlindaréttinda í Krýsuvík til vinnslu á heitu vatni, ferskvatni og til raforkuframleiðslu. Markmiðið er að auka afhendingaröryggi á heitu vatni í Hafnarfirði og annars staðar á höfuðborgarsvæðinu ásamt því að mæta vaxandi raforkuþörf í landinu. Samhliða verður unnið að hugmyndum um auðlindagarð með áherslu á útivist og vistvæna atvinnustarfsemi.